Menntamál - 01.12.1957, Side 57
MENNTAMAL
247
Menntamál þrítug.
Með þessu tölublaði er lokið þrítugasta árgangi Mennta-
mála. Ásgeir Ásgeirsson kennari við Kennaraskólann, síð-
ar forseti íslands, stofnaði þau, og kom fyrsta tölublað út
í október 1924, og eru því liðin 33 ár frá útkomu þess.
Þá voru Menntamál mánaðarrit. Ásgeir Ásgeirsson stjórn-
aði ritinu og gaf það út fyrir eigin reikning. Kom ritið
út reglulega fyrstu 4 árin, en þá varð hlé á útgáfu þess,
en fimmti árgangur hófst í janúar 1931. Ásgeir Árgeirs-
son gaf þau enn út, en Helgi Elíasson vann með honum
að ritstjórninni.
Með fjórða tölublaði 1932 lætur Ásgeir Ásgeirsson af
útgáfu Menntamála, og hafði hann þá gefið út tæpa 6 ár-
ganga. Mun ritið eiga honum meira að þakka en nokkrum
öðrum manni einum, enda var hann höfundur þess, eins
og fyrr er getið.
Þegar Ásgeir Ásgeirsson lét af útgáfunni, tóku ...r.okkr-
ir kennarar“ við henni, en ritstjóri varð Guðjón Guðjóns-
son.
Áttundi árgangur hófst með 1. tbl. janúar—febrúar
1935, og hafði þá Samband íslenzkra barnakennara tekið
við Menntamálum. Ritstjóri var Gunnar M. Magnúss,
en Pálmi Jósefsson sá um fjárreiður og afgreiðslu. Síðan
gaf sambandið Menntamál út og gerir enn, en 1950 gerði
Landssamband framhaldsskólakennara félag við Samband
íslenzkra barnakennara um útgáfuna, og er svo enn.
Árið 1936 var sett sérstök útgáfustjórn. í henni voru
Guðjón Guðjónsson, Sigríður Magnúsdóttir og Sigurður
Thorlacius. Sigurður var ritstjóri, en Sigríður sá um af-
greiðsluna.