Menntamál - 01.12.1957, Blaðsíða 69
MENNTAMÁL 259
I eftirfarandi kafla verður lítið eitt sagt frá byrjun
lestrarkennslu í Bandaríkjunum.
Þegar nýliðarnir koma í skóla þar fyrstu daga í sept-
ember, er þeim raðað í bekki upp og ofan án tillits til
getu eða þroska, enda hefur það þá ekki verið athugað.
Hyllzt er til að hafa álíka marga drengi og telpur í bekk,
sjaldgæft er að aðgreina kynin. Systkin fara ekki í sama
bekk. Bekkjarkennari veitir börnum viðtöku. Það er ávallt
kona í borgum og öðrum stórum skólahverfum. Hún þekk-
ir börnin ekki neitt, en veit, að hún ber ábyrgð á að skila
þeim sæmilega framgengnum eftir skólaárið.
Fyrsta verkið er að kynnast börnunum og venja þau
við skólalífið. Er það gert með því, að kennslukonan skipu-
leggur daginn, líkt og gerist í leikskólum. Þess er mjög
stranglega gætt, að börnin öðlist jafnan hlýju og nærgætni
þegar í upphafi, svo að þau verði velviljuð skólanum og
allt honum viðkomandi verði hugljúft og aðlaðandi.
Fyrstu dagarnir eru því leikskóli. Jafnframt kynnir kenn-
ari sér þær skýrslur, sem fyrir hendi eru um börnin. Þær
eru venjulega tvenns konar. Þær, sem gerðar eru um leið
og barnið er innritað, eru um ætt barns og heimili.
Hinar skýrslurnar eru frá smábarnaskólum, hafi barnið
sótt þá. En það er víða föst venja, að öll 5 ára börn sæki
þá. Þar er samin fjölþætt skýrsla um barnið á þar til
gert eyðublað.
Þessi byrjunarstörf notar kennslukonan til að kynnast
börnunum, og einnig koma þau í góðar þarfir til að geta
haldið öllum starfandi síðar meir, þótt nokkur séu tekin
sér til meðferðar í stofunni.
Þegar börnin hafa dálítið vanizt skólalífinu og eru orð-
in heimakomin innan veggja skólastofunnar, er lagt fyrir
þau lesþroskapróf. Þau próf nefnast á ensku Reading
Readiness-próf. Börn þau, er leysa þau próf viðunandi
af hendi, eru talin hæf í lesnám. Og hætt er athugun á