Menntamál - 01.12.1957, Side 74
264
MENNTAMÁL
SIG. GUNNARSSON:
Tillaga um fulltrúaþing.
Ég var í hópi þeirra fulltrúa, sem sátu þing Sambands
íslenzkra barnakennara í vor, og hef einnig setið á nokkr-
um öðrum þingum þeirra samtaka. Hafa þau öll verið
haldin í Reykjavík. Ég á ýmsar góðar minningar frá þess-
um þingum, og þar hafa að sjálfsögðu oft verið flutt ágæt
erindi og rædd merk mál, er stéttina varða.
En einn stór galli hefur jafnan einkennt þessi þing
yfirleitt. Á ég þar. við eirðarleysi, óstundvísi og blátt
áfram tímaleysi margra fulltrúa til að sitja þá fundi, sem
þeir hafa verið kjörnir til. Svo mikil brögð hafa verið að
þessu stundum, að ekki hefur gefizt aðstaða til að ræða
til fulls ýmis atriði eða bæta við nýjum, og þingum lokið
í hálfgerðri upplausn, eins og til dæmis í vor. Um nýja
kynningu milli fulltrúa er tæpast hægt að tala.
Þetta má með engu móti þannig ganga lengur. Þessi
þing eiga að sjálfsögðu að koma saman hér eftir sem hing-
að til, — þótt nokkrar hjáróma raddir töluðu um í vor,
að þau bæri að leggja niður, — og þau eiga að einkennast
anna. Enginn lestur er þar kenndur, en samt er talið, að
öðru jöfnu, að börn, sem sótt hafa smábarnaskóla, séu
fyrr búin til lestarnáms en hin.
September 1957.
Jón Kristgeirsson.