Menntamál - 01.12.1957, Side 116
306
MENNTAMÁL
SITT AF HVERJU TÆI
AÐALFUNDUR KENNARASAMBANDS AUSTURLANDS.
13. aðalfundur Kennarasambands Austurlands var haldinn á Seyð-
isfirði dagana 14. og 15. sept. s. 1.
Fundinn sátu 16 kennarar af félagssvæðinu. Vegna slæmrar færðar
á Fjarðarheiði komu færri en ætluðu. Fundarstjórar voru þeir Ragn-
ar Þorsteinsson, Eskifirði, og Ármann Flalldórsson, Eiðum.
Sambandsstjórnin hafði fengið þá Kristin Björnsson, sálfræðing,
og Óskar Halldórsson, kennara, Reykjavík, til þess að halda erindi
á fundinum. Nefndi Kristinn sitt erindi „Sitt af hverju um námsörð-
ugleika og afbrigðileg börn í skóla.“ Óskar talaði um móðurmáls-
kennsluna.
Spunnust um bæði erindin miklar umræður. Að loknum fundi
hlýddu fundarmenn messu hjá séra Erlendi Sigmundssyni, Herðu-
breið, og að síðustu sátu allir fundarmenn kaffiboð fræðslunefnd-
ar Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Stjórn sambandsins skipa nú:
Þórður Benediktsson, Egilsstaðakauptúni, Guðmundur Magnús-
son, Egilsstaðakauptúni, Ármann Halldórsson, Eiðum.
Eftirfarandi ályktanir og tillögur voru gerðar á fundinum.
1. 13. aðalfundur Kennarasambands Austurlands lialdinn á Seyðis-
firði dagana 14. og 15. sept. 1957, lýsir sig fylgjandi meiri bókmennta-
lestri og ritgerðakennslu, eins og fram er tekið í Drögum að náms-
skrá fyrir barna- og unglingaskóla 1957. En til þess að slíkt megi
takast álítur fundurinn að gera þurfti verulegar breytingar á náms-
efni frá því, sem gert er ráð íyrir i námsskránni, sérstaklega mál-
fræði.
Bendir fundurinn á eftirfarandi:
a) Málfrœðikennslan: Reynt sé að haga henni þannig, að hún
auki hæfni nemenda í meðferð tal- og ritmáls og stuðli að málvönd-
un og bættum málsmekk. Hins vegar verði hún ekki kennd of mik-
ið sem sérstök fræðigrein, heldur leitazt við að sneiða lijá þeim mál-
fræðiatriðum, sem eingöngu hafa fræðilegt gildi.
Fundurinn telur brýna þörf á endurskoðun núverandi kennslu-
bóka, til samræmis við fyrrgeint sjónarmið. Kennslubókin á unglinga-
stiginu verði fyrst og fremst greiningarkaflar með stuttum skýringum.
b) Stafsetning: Fundurinn álítur að endurskoða þurfi námsefni í