Menntamál - 01.12.1957, Page 119
MENNTAMÁL
309
142 börn þreyttu barnapróf, og fengu 13 börn ágætiseinkunn og
90 börn 1. einkunn.
Hæsta einkunn á barnaprófi hlutu þessi börn: Einar Pálsson, 9,38,
Guðrún Kristjánsdóttir 9,36 og Sigríður Whitt 9,26.
Nálega öll börnin höfðu nú lokið sundprófi, örfá höfðu læknis-
vottorð, sem leysti þau frá sundnámi, og 2 eiga ólokið sundpróf-
inu. Þessi góði árangur er að þakka hinni nýju sundhöll, en þar
hefur nú farið fram sundkennsla i allan vetur.
Bókaverðlaun fyrir beztu ritgerðir við barnapróf, er Bókaforlag
Odds Björnssonar veitir á hverju vori, hlutu þessi börn:
Bergþóra Einarsdóttir, Brynjólfur Bjarkan og Sigríður Wliitt.
Eins og áður segir ávarpaði skólastjóri brautskráða nemendur að
lokum og lauk máli sínu með þessum orðum:
í Orðskviðum Salómons segir: Varðveit hjarta þitt framar öllu,
því að þar er uppspretta lífsins. Það er í raun og veru þetta, sem
cg hef verið að reyna að segja ykkur. Vondir menn með spillt hjarta
og hugarfar, geta aldrei orðið hamingjusamir, þótt þeim gangi ann-
ars allt að óskum að ytra útliti. Að vera góður maður er bezta eink-
unnin, sem nokkur getur fengið. Ég vona, að þá einkunn eigið þið
öll skilið bæði nú og ætíð, hvað sem þeim einkunnum líður, er þið
hljótið nú við barnapróf. Að lokunt þakka ég ykkur langa og góða
samvinnu og bið guð að blessa ykkur allar stundir.
AÐALFUNDUli KENNARAFÉLAGS EYJAFJARÐAR.
Aðalfundur Kennarafélags Eyjafjarðar var haldinn í Barnaskóla
Akureyrar 28. sept. s. 1. Á fundinum mættu 46 skólastjórar og kenn-
arar af Akureyri og úr Eyjafirði. Fundarstjóri var Jónas Jónsson frá
Brekknakoti.
Fundurinn hófst með ávarpi formanns félagsins, Hannesar J.
Magnússonar. Þá fóru fram venjuleg aðalfundarstörf. Félagið gef-
ur út tímaritið Heimili og skóla og var afkoma þess svipuð og áður.
Þá flutti Stefán fónsson, námsstjóri, erindi og ræddi um ýmislegt
í kennslustarfinu, þó einkum lestrarnámið og skiptingu í deildir.
Skýrði liann frá, að von væri á útgáfu 4. heftis í Islandssögu um
áramót, og er það ritað af Þorsteini M. Jónssyni. Miklar umræður
urðu um erindi námsstjórans.
Þá flutti Örn Snorrason erindi: Úr utanför, og Gunnar Markússon
talaði um prófin. Urðu miklar umræður uni síðara erindið.
Snorri Sigfússon, fyrrv. námstjóri, flutti ávarp um sparifjársöfnun