Menntamál - 01.12.1957, Qupperneq 120
310
MENNTAMÁL
skólabarna og skýrði frá vísitölutryggingu sparifjárins, sem í vænd-
um er.
Á fundinum sýndu þeir Hilmar Magnússon og Páll Gunnarsson
litmyndir, sem þeir hafa tekið síðastliðið sumar. Sjö kennarar gengu
í félagið á fundinum.
Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa: Hannes J. Magn-
ússon, formaður, Eiríkur Sigurðsson, ritari, og Páll Gunnarsson fé-
hirðir.
AÐALFUNDUR KENNARAFÉLAGS VESTFJARÐA.
15. aðalfundur Kennarafélags Vestfjarða var haldinn dagana 13. og
14. október síðastliðinn í barnaskólahúsinu á ísafirði. Formaður félags-
ins, Guðni Jónsson, setti fundinn og minntist látins félaga, Ólafs Jóns-
sonar, skólastjóra, Súðavík.
Fundarstjórar voru kosnir þeir Sæmundur Ólafsson og Tómas Jóns-
son. Fundarritarar Guðmundur Ingi Kristjánsson og Friðbjörn Gunn-
laugsson.
Á fundinum voru mættir kennarar af félagssvæðinu ásamt kennur-
um gagnfræðaskóla ísafjarðar, samtals 28 menn.
Erindi á fundinum fluttu: Þórleifur Bjarnason námsstjóri, Guð-
mundur Hagalín rithöfundur og Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi.
Ályktun frá fundinum:
Aðalfundur Kennarafélags Vestfjarða telur höfuðnauðsyn að ís-
lenzkukennslu í barna- og unglingaskólum sé hagað þannig, að mikil
áherzla sé lögð á fagurt mál, góðar frásagnir, munnlegar og skriflegar,
og kynningu íslenzkra bókmennta.
Bendir fundurinn á, að auka þurfi bókmenntakennslu í Kennara-
skólanum og leggja áherzlu á, að kennaraefni læri sérstaklega að
kynna börnum íslenzkar bókmenntir í bundnu og óbundnu rnáli.
Á fundinum var einróma samþykkt að gera þau hjónin Björn H.
Jónsson skólastjóra og frú Jónínu Þórhallsdóttur að heiðursfélögum
Kennarafélags Vestfjarða.
í stjórn voru kosnir: Guðni Jónsson, ísafirði, formaður, Finnur
Finnsson, ísafirði, gjaldkeri og Guðm. Ingi Kristjánsson, Mosvalla-
hreppi, ritari.
ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA BARNAKENNARA OG
LANDSAMBAND FRAMHALDSSKÓLAKENNARA
Ritstjóri: Droddi Jóhannesson.
Afgreiðslu og innheimtu annast Pálmi Jósefsson. Pósthólf 616.
PRENTSMIÐJAN ODDI H.F.