Menntamál - 01.12.1957, Síða 121
MENNTAMÁL
311
Kennarastóll í uppeldisfræði
við Háskóla íslands.
Með hinum nýju lögum um Háskóla Islands. sem sett
voru á síðasta alþingi, er lögfest prófessorsembætti í upp-
eldisfræðum. Það hefur lengi verið áhugamál íslenzkra
kennara, að upp yrði tekin kennsla í uppeldisfræði við
Háskólann. Milliþinganefnd sú, er undirbjó fræðslulög-
gjöfina frá þingunum 1946 og 1947, segir meðal annars:
„Nefndin leggur því mjög ríka áherzlu á, að kennarar,
sem hafa lokið prófi úr kennaraskóla, eigi kost á fram-
haldsnámi við háskólann. Æskilegast hefði verið, að þeir
stunduðu allir slíkt framhaldsnám." Annar kafli laga um
menntun kennara, 12. marz 1947, fjallar um kennslu-
stofnun í uppeldisvísindum við Háskóla íslands. Með
lítils háttar breytingu á þessum lögum eru endurteknar
óskir kennara um kennslu í uppeldisfræði við Háskólann
orðnar að veruleika. „Prófessorinn í uppeldisfræðum skal
skipuleggja kennsluæfingar nemenda í uppeldisfræðum.
Hann skal halda fyrirlestra fyrir starfandi kennara og
efna til námskeiða fyrir þá. Auk þess skal hann annast
rannsóknir og leiðbeiningarstörf í þágu uppeldismála
landsins, eftir því sem kveðið verður á í reglugerð.“
Dr. Matthías Jónasson hefur verið skipaður í hið nýja
embætti. Góðar óskir fylgja honum að starfi, og mun
vegur Háskólans vaxa af hinni nýju kennslugrein, en
óvíða mun brýnni þörf að hagnýta vísindi en í uppeldi,
en ríkisvaldi því skyldara að stuðla að því, að svo verði,
sem það er ótrauðara að taka fræðslu og uppeldi í sínar
hendur.