Menntamál - 01.12.1962, Side 93
MENNTAMÁL
807
skólatöflur og kort, sem þá geta verið á tveim veggjum og
sjást vel úr öllum sætum.
Önnur nýjung var sú, að þak skólans er allt með hálf-
tunnu- eða braggalagi í 10 einingum. Því lagi hygg ég, að
við Islendingar yrðum ekki ginkeyptir fyrir, en það kvað
hafa reynzt hagkvæmt.
Skólabygging þessi er með 86 kennslustofum, 30X30
fetum hverri, leikfimi- og samkomusal, 90x95 fet, stóru
bókasafni, auk annars þess, er slíkum skólabyggingum
fylgir. Byggingarkostnaðurinn varð um % milljónar dala
(rúmlega 32 millj. ísl. kr.) og var það mun minna en skóla-
bygging af venjulegri gerð og sömu stærð hefði kostað.
/ Oklahoma.
I Enid í Oklahoma kom ég í eina gagnfræðaskóla bæjar-
ins, og var mér sýnt þar margt að vanda. Auk venjulegra
kennslustofa og sérstofa, skoðaði ég þar verknámsdeild og
þótti fróðlegt.
Þar kom ég í smíðastofu með alls kyns vélaútbúnaði,
þar sem nemendur smíðuðu fagra gripi, og sá ég m. a.
skrifborð, sófaborð, bókahillur, og innlagða kistla, sem
nemendur höfðu smíðað og voru að smíða, og mér virtust
hreinustu kjörgripir.
Næst kom ég í mikla járnsmíðastofu, þar sem margs
konar vélar voru, sem ég hafði aldrei áður séð. Þar sá ég
nemendur, sem voru að renna hluti eftir nákvæmum teikn-
ingum, og var mér sagt, að þegar þeir útskrifuðust, hefðu
þeir fullkomin réttindi sem járnsmiðir og færu venjulega
beint í slíka vinnu eftir lokaprófið. Skólinn tók að sér að
renna hluti fyrir fyrirtæki og lét nemendur síðan spreyta
sig á að framkvæma verkið.
Þá kom ég í stóra prentsmiðju, þar sem margir nem-
endur unnu við handsetningu og fleira, og gaf kennarinn
mér blað skólans, sem var að koma úr pressunni, en er
skrifað, sett og prentað af nemendum skólans.