Heima er bezt - 01.01.1957, Blaðsíða 36

Heima er bezt - 01.01.1957, Blaðsíða 36
Höfundur: TOP NAEFF . Þýðandi STEFÁN JÓNSSON, námsstjóri GhJyJJ SKOLASAGA FRA HOLLANDI OG VIN STÚLKUR HENNAR II. NÝJA STÚLKAN. Klukkuna vantaði fimm mínútur í níu. — Nanna, Lilja og Jóhanna áttu skammt eftir í skólann. — Jóhanna gekk á milli systranna. Hún var þungt hugsandi. Henni fannst sem allir myndu sjá það á sér, hvernig þetta var með heimadæmið. — Nanna gekk með opna landafræð- ina og reyndi að lesa. „Kemur nýja stúlkan núna strax eða eftir hádegið?“ spurði Lilja. „Núna strax,“ svaraði Jóhanna. Ungfrú Prior leit út í skóladyrnar og gaf stúlkunum merki um að koma strax inn, og sagði: „Ertu enn að lesa lexíuna þína, Nanna? Nú held ég að þú kunnir vel. — Gangið strax inn í skólastofuna. — Ég skil ekki hvers vegna þið þrjár eruð alltaf svo sein- látar.“ Inni í skólastofunni voru tvær stúlkur að hengja upp landakort með miklum bægslagangi. Hjá þeim stóð ung- frú Veronika og hélt á reglustiku. — „Þögn! Þögn!“ sagði hún skipandi. — Rétt í því að hringt var, og allar stúlkurnar voru komnar, hver í sitt sæti, kom Jenný stormandi inn með svuntuna í hendinni, — ætíð á síð- ustu mínútunni. Góðan daginn ungfrú. — Góðan daginn krakkar. — Hefur engin ykkar séð landkortabókina mína?“ „Jenný,“ sagði ungfrú Veronika í ströngum rómi og sló réglustikunni í kennaraborðið. Nanna sat fyrir aftan Jennýu, iðandi af fjöri og kátínu. „Hvíslaðu að mér. — Ég man ekki stakt orð,“ sagði Jenný og leit um leið snöggt í kringum sig. „Sittu þá beint fyrir framan mig. — Já, svona. Ann- ars sér kennslukonan, þegar ég fletti bókinni upp. — Ég kann náttúrlega ekkert heldur.“ Jenný settist í sæti sitt. „Hún er inni í herbergi skólastjórans. Hún kemur víst rétt strax. Ég er svo spennt. — Ert þú það ekki líka?“ hvíslaði Nanna. Nanna hafði sterka, óþjála rödd, og gat ekki vanið sig af því, eða talað hljóðlega, þótt hún reyndi það. „Jæja,“ svaraði Jenný hljóðlaust og hreyfði ekki var- irnar. — Ungfrú Veronika leit þó hvasst til þeirra, því að hinn óþjáli málrómur Nönnu hafði vakið hana. Lilja sat þögul í fremsta bekk og starði á auða sætið við hlið Jennýjar. Hún leit við og varir hennar mynd- uðu hljóðlaust orðið sauður. — Langt að baki sat Jó- hanna óaðfinnanleg með svuntu, eins og vera bar í skól- anum. Hún hafði ekki spurt, hvort þær Jenný mættu skipta um sæti, af því að hún taldi það alveg tilgangs- laust. „Hefurðu séð hana?“ spurði lítil, feitlagin stúlka, sem sat fyrir framan Jennýju. „Nei-nei — ætli hún fari ekki að koma. — Hvíslaðu að mér, hvíslaðu skýrt, ef ég verð spurð út úr. — Ég fann ekki landafræðina mína í gærkvöldi,“ svaraði Jenný. „Ef til vill hvíslar nýja stúlkan að þér,“ svaraði hin. — En þetta sagði hún bara út í bláinn. „Kyrrar þarna,“ skipaði ungfrú Veronika. „Heldurðu að hún geri það?“ hélt Jenný áfram sam- talinu. „Komið hérna að kortinu, Jenný, og bendið á borg- ina Pavía,“ skipaði ungfrú Veronika og vildi þar með slíta samtali stúlknanna. „í Guðs nafni, styðjið nú við bakið á mér,“ hvísl- aði Jenný um leið og hún stóð upp, en svipurinn á henni var eins og ætti að skjóta hana. „Hjálpið mér stelpur, Nanna, Lilja, Nína.“ „En Guð var með Jennýju í þetta sinn, því að áður en hún var komin upp að kennaraborðinu, kom for- stöðukonan, ungfrú Prior, inn, og á eftir henni þessi margnefnda, „nýja stúlka“. Jenný settist aftur sárfegin, en um leið og hún kom í sæti sitt, hvíslaði Nanna: „Rétt hjá Milano. — Það er rautt strik undir borgarnafninu." Jenný hneigði lítil- lega höfuðið til merkis um það, að hún hefði heyrt og skilið. — En þetta var þó allt annað en hún hafði haldið. Með föstu, rólegu augnaráði leit nýkomna stúlkan 34 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.