Heima er bezt - 01.02.1959, Page 4

Heima er bezt - 01.02.1959, Page 4
 Hér stendur Metúsalem við sitkagrenitré, sem hann gróður- setti i hvamminum ofan við bceinn 1949 eða 1950. Það cetti að vera óþarft að orðlengja um vöxtinn á þessu tré! rM síðustu aldamót voru búskaparhættir öðruvísi en nú eru. Þá voru víða stór og mannmörg heimili og flest, sem, heimilin þörfnuðust, hvort sem var utan bæjar eða innan, var unnið af heimilisfólkinu með iðnum og lag- virkum höndum, og metnaður lagður í að það, sem unnið var, væri sem vandaðast og varanlegast og kæmi að sem beztum notum. Á mörgum bæjum kom þá í ljós mikil verkmenning, sem lýsti fyrirhyggju og fram- sýni góðra húsbænda og dyggri þjónustu trúrra hjúa, sem mörg lögðu sig fram um að gera garðinn frægan og hugsuðu eigi minna um hag húsbóndans og heim- ilisins en sinn eigin, og mun af því komið máltækið: „Sér eignar smali fé, þó ei eigi“. Á þessu tímabili voru mörg stór og glæsileg heimili í Fljótsdal, sem alltaf hefur verið talin fegursta og bezta sveitin á Austurlandi, enda er þar veðursæld mikil. Á einu höfuðbólinu í Fljótsdal, Melum, fæddist og ólst upp dugnaðarmaðurinn og bændahöfðinginn Metú- salem J. Kjerúlf, sem fram að þessu ári hefur búið stóru blómabúi á jörðinni Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal. Porsteinn Jónsson, kaupfélagsstjóri: METÚSALEM Á HRAFNKELS STÖÐUM Metusalem J. Kjerulf. 44 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.