Heima er bezt - 01.02.1959, Síða 16

Heima er bezt - 01.02.1959, Síða 16
ÁRNI ÁRNASON FRÁ GRUND: Fr á Tyrkj arániog H er Isögu Vestmannaeyja mun ársins 1627 ávallt verða minnzt með hryllingi. Finnast þess enn glögg merki meðal almennings þótt yfir 300 ár séu síðan óhugn- anlegir atburðir þess árs dundu yfir Eyjarnar og önnur héruð meginlandsins. Þetta ár gerðu Tyrkir strandhögg mikið á landi hér, sem mest bitnaði á Eyj- unum. Víða í Evrópu var og ár þetta mesta óhappaár og erfiðleika. Þar áttu sum löndin í styrjöld, hinu svo- nefnda 30 ára stríði, og bjuggu við mestu hörmungar og erfiðleika vegna afleiðinga þess. Á höfum úti var einnig hið mesta hættusvæði. Þar var vettvangur ill- ræmdustu sjóræningja, sem sagan getur um, svo enginn var öruggur um líf sitt og limi er hætti sér þangað. í þann tíma voru Barbaríuríkin1) á norðurströnd Afríku á sínu blómaskeiði, en þaðan voru stundaðar í stórum stíl, mannaveiðar og rán, sem mikið gáfu í aðra hönd, 1) Svo nefndu íslendingar löngum Algier og Tunis. Voru ræningjarnir, sem hingað komu, frá Algeirsborg. rán, sem þjóðirnar stóðu gegn agndofa og nærri ráða- lausar. Sjóræningjar frá Barbariu voru hinir illræmd- ustu og gengu undir sameiginlegu nafni og nefndir Tyrkir eða jafn vel Hundtyrkir. Þó voru þeirra á með- al margir annarra þjóða menn, trúvillingar svonefndir. Voru það menn, er Tyrkir höfðu hertekið víða um lönd en þeir svo yfirgefið trú sína og tekið trú, siði og venj- ur Barbariumanna. Er sagt að trúvillingar þessir hafi verið einna ofsalegastir og grimmastir í ránsferðum, píningum og morðum, hvar sem þá bar að garði, ekki hvað sízt í föðurlandi sínu. Aðal ránssvæði Tyrkja voru fyrst og fremst Miðjarð- arhafið og þar nálæg lönd, en þeir brugðu sér einnig út á Atlantshafið og til landanna þar, í miklar ráns- ferðir víða um, meira að segja alla leið norður til ís- lands. Ekki er enn vitað með vissu hvaðan ræningjarnir fengu þá hugmynd og ákvörðun, að fara til íslands í ránsferð, þar sem þeir voru öllum staðháttum ókunnir, en talið er að danskur maður, Paul að nafni, hafi bent

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.