Heima er bezt - 01.02.1959, Síða 34

Heima er bezt - 01.02.1959, Síða 34
BARNAGETRAUN (ÞRIÐJI HLUTI - FEBRÚAR 1959) NOTIÐ ÞETTA TÆKIFÆRI TIL AÐ VINNA AFBRAGÐS ÚTBÚNAÐ í ÚTILEGUFERÐIR Og nú er komið að þriðja og síðasta þætti í hinni skemmtilegu bamagetraun „Heima er bezt“, með góðu verðlaununum íjórum. Og verðlaunin em, eins og við höfum áður skýrt ykkur frá, tjald, svefnpoki, bakpoki og kuldaúlpa, að samanlögðu verðmæti kr. 1810.00. Þetta em f jórir hlutir, sem við emm vissir um að muni verða ykkur til mikillar ánægju og sem þið getið verið stolt af að eignast, því að þetta em sérlega vandaðir og eigulegir munir, frarn- leiddir af Belgjagerðinni og Skjól- fatagerðinni í Reykjavík, sem er í sjálfu sér trygging fyrir því, að þetta em vandaðir munir. Þá er að útskýra fyrir ykkur, hvemig þið eigið að senda ráðningar á þrautinni til blaðs- ins. Allir piltar og stúlkur, 16 ára og yngri, geta tekið þátt í bamagetrauninni. Ráðningar á öllum þremur þáttum getraunarinnar eigið þið að skrifa á blað ásamt nafni ykkar, aldri og heimilisfangi. Síðan setjið þið blaðið í um- slag, sem þið auðkennið með orðinu BARNA- GETRAUN og sendið það til „Heima er bezt“, pósthólf 45, Akureyri. En munið, að ráðningamar verða að hafa borizt blaðinu í síðasta lagi 15. apríl, því að þá geta þeir krakkar, sem verða svo heppnir að hreppa verðlaunin, skoðað þau sem nokkurs konar sumargjöf um leið. — Ef margar réttar ráðningar berast, verður dregið um sigurvegar- Nú hafa allir fastir og skuldlausir áskrifendur „Heima er bezt“ fengið senda fyrstu Áma-bókina eftir Ármann Kr. Einarsson, FALINN FJÁRSJÓÐUR, ókeypis. Þess vegna ættuð þið ekki að vera í miklum vandræðum með að leysa úr síðustu spumingunni í þessari getraun. En þið eigið auðvitað að svara spumingunum sjálf og ekki láta aðra hjálpa ykkur með þær. Það er ekkert gaman. — Síðasta spumingin er þá þessi: Hvers son var Arni, söguhetjan i Arna-bókunum?

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.