Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1959, Qupperneq 36

Heima er bezt - 01.02.1959, Qupperneq 36
SPARIÐ KRAFTANA - LÁTIÐ „FERGUSON" VINNA FYRIR YÐUR 1. VERÐLAUN: HEYKLO 2. VERÐLAUN: REIMSKÍFA 3. VERÐLAUN: SJÁLFVIRKUR DRATTARKRÓKUR. Já. því skylduð þér gera yður vinnuna erfiðari en nauðsyn krefur, þegar þér hafið möguleika á að láta FERGUSON dráttarvélina vinna, meðan þér gerið varla annað en sitja og horfa á. FERGUSON verksmiðjurnar bera nefnilega af öllum öðr- um dráttarvélaframleiðendum að því leyti, að þeim hefir tekizt að framleiða svo fullkomna dráttarvél, að hún hentar við hvaða landbúnaðarstörf sem vera skal, hvort sem þau eru stór eða smá. Og svo er til ótrúlegur fjöldi hjálpartækja, sem hægt er að tengja við FERGUSON dráttarvélina án minnstu fyrirhafnar. Þér munið verða alveg undrandi þegar þér sjáið öll þau óskyldu störf sem hægt er að vinna með FERGUSON dráttarvél með því að tengja bara dálítið hjálpartæki við hana. Talið bara við einhvem af umboðs- mönnum FERGUSON (þeir eru í flestum kaupfélögum) og biðjið hann að sýna yður myndalista um hvað hægt er að gera með þessari dásamlegu dráttarvél. Tökum sem dæmi hjálpartækin þrjú, sem eru verðlaun í hinni stóru verðlaunagetraun „Heima er bezt“. Það er ekk- ert smáræði, sem þér getið sparað yður í tíma, peningum og erfiði ef þér eignist slík tæki. Heyskapurinn verður auð- veldari, þér getið notað vatnsdælur og viðarsagir og svo getið þér hjálparlaust og fyrirhafnarlaust tengt fullhlaðinn vagn aftan í FERGUSON dráttarvélina yðar. Og hver veit nema þér verðið einmitt einn af hinum lánsömu sigurveg- urum í hinni glæsilegu verðlaimagetraun „Heima er bezt“ um FERGUSON-hjálpartækin þrjú. Það er þó ómaksins vert að reyna, er ekki svo? LESIÐ NANAR UM ANNAN ÞATT VERÐLAUNAGETRAUNARINNAR A BLAÐSIÐU 73.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.