Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1959, Qupperneq 30

Heima er bezt - 01.05.1959, Qupperneq 30
hann var orðinn frískur. Þá var nú margt talað, og allir héldu, að Rósa kæmi aldrei heim aftur. En hún kom heim, og síðan hefur víst sambúðin verið ágæt, þangað til þetta kom fyrir, og eins verður það núna, ef Guð gefur henni heilsuna, þá kemur hún aftur. Hún gerir það vegna drengsins. Og verið þér svo blessaðar og sælar og þakka yður fyrir allt gott.“ „Verið þér sælar, Þorgerður mín, og þökk fyrir alla fyrirhöfnina mín vegna,“ sagði Karen og sló í hestinn og þeysti af stað. Hún var búin að fá nóg af vaðlinum í Gerðu. Hún hafði aldrei verið hrifin af svo- leiðis ræðuhöldum. Hún sá þær í huganum, nágranna- konur sínar í torfunni, hvernig þær hefðu setið og skeggrætt hennar dýrmæta leyndarmál, eftir að þær voru búnar að grafa það upp. Það hefði verið mikið vatn á þeirra mylnu. Gerða beið við hliðið með hendina á lofti. Hún ætl- aði að veifa blessaðri maddömunni næst þegar hún liti við. En maddaman leit ekki við. Þá gramdist Gerðu. „Hún er svipuð sjálfri sér ennþá með bölvuð merki- legheitin! Varla hafa þau minnkað við Reykjavíkur- veruna,“ tautaði hún við sjálfa sig. „Og svo getur dag- urinn þessi og allt umstangið hafa gengið dálítið nærri henni. En myndarleg er hún ennþá!“ Ferðafólkið reið þegjandi út melana. Það hafði þykknað í lofti og dregið fyrir sólina, en veðrið var samt hlýtt. Nokkrir strjálir regndropar, sem líktust ótrúlega mikið tárperlum, féllu ofan á skræln- aðar melgöturnar og á steinana umhverfis þær. Kristján hafði þráð að það gerði skúr vegna túnsins, en nú fannst honum þessir dropar boða óhamingju og eins það, að sólin skyldi hætta að skína um sama leyti og þau höfðu riðið úr hlaði. Móðir hans var hjátrúar- full og trúði á alls konar hindurvitni og bábiljur. Hann hafði lítinn trúnað lagt á svoleiðis raus, en nú rifjaðist það upp fyrir honum. Mest var að marka veðrið, þegar lagt var upp í langferð. Sólskin og logn boðaði ást og sælu. Þannig hafði veðrið verið, þegar hann kvaddi for- eldrahúsin þann örlagaríka dag, sem hann fluttist að Hofi. Ekki vantaði það, að vel spáði veðrið fyrir honum, enda var hann ekki lengi að höndla hamingjuna. En leiðin var löng, og í roki og rigningu reið hann í hlaðið á því stóra höfuðbóli. Mikið regn boðaði auðlegð, en regndropar í sólskinslausu veðri boðuðu sorg og tár, einmitt eins og núna. Hann efaðist ekki um, hvað fram- undan væri. Skammt fyrir sunnan kaupstaðinn þaut áburðarhest- urinn út af götunni, rak sig á stein og setti annað kof- fortið upp af ldakknum og þaut svo áfram á eftir kven- fólkinu. Kristján fór af baki og sagði drengnum að bíða hjá koffortinu meðan hann næði hestinum. Hann náði honum fljótlega og kom með hann til baka. „Hann er óþekkur, þessi hestur,“ sagði drengurinn. „Já, það eru margir erfiðir í dag,“ svaraði Kristján. Hann lét síðan upp á hestinn og teymdi hann á götuna. Þetta atvik varð til þess, að konurnar voru kornnar af baki við hestaréttina, nema Rósa sat enn í söðlinum þegar maður hennar kom svo nálægt, að hann sá, hvað ferðakonunum leið. I þessu bar séra Gísla þarna að, og tók hann Rósu af baki. Einnig kom læknisfrúin og vildi láta þær koma inn, því að kaffið væri á könnunni. Maddaman sagðist náttúrlega hafa góða lyst á því, en kvað Rósu þurfa að komast strax um borð, svo að hún gæti farið að hvíla sig. Mæðgurnar voru því horfn- ar þegar Kristján kom að hestaréttinni, líklega komnar ofan í bát og á leiðinni út í skip. Kristján flýtti sér að taka ofan af flutningshestinum og koma honum og hinum hestunum inn í réttina. Hann sá uppskipunarbátinn, þar sem hann var að lenda við skipshliðina. Gremjan sauð í honum. — Það hefði sjálf- sagt ekki tafið þær mikið að doka við eftir honum! Réttast væri að fara heim með drenginn og allan farang- urinn og láta þær sigla sinn sjó allslausar. Það var svo sem auðséð, hver réði þessu ferðalagi! Þá kjökraði Jón litli: „Pabbi, mamma er farin með stóra skipinu.“ „Þá er bezt fyrir okkur að fara heim að Hofi aftur og hugsa um lömbin og folöldin. Heldurðu, að það verði ekki gaman?“ Drengurinn fór að gráta: „Nei, það er ekkert gaman að vera á Hofi, þegar mamma er farin. Eg vil fara með mömmu.“ „Jæja, góði minn, láttu ekki liggja illa á þér. Við fá- um okkur annan bát og förum á eftir þeim.“ Vegna Rósu og drengsins varð hann að hætta við öll hefndar- áform. Það varð að gera fleira en gott þótti. í þetta sinn var hann sigraður, og þá verður að sætta sig við allt. Kannske kæmu þeir dagar, að hann bæri hærra hlut! „Þurrkaðu mér um augun, pabbi,“ bað drengurinn. Hann gerði það, en barnið fann að það voru ekki mjúku móðurhendurnar, sem þerruðu sorgartárin. „Þú kannt þetta ekki, pabbi. Mamma gerir það betur,“ sagði hann. „Það er satt,“ hugsaði Kristján. „Enginn var barninu sem ástrík og elskuleg móðir. Það hefði orðið erfitt að skilja hann frá henni.“ Þótt honum sviði sárt að sjá af honum, var hún þó sjúklingur. Það beið bátur við bryggjuna. Það var aðeins lítill fiskibátur, en það voru engin vandræði að fara með honum í þessu logni. Drengurinn var hræddur við sjóinn: „Heldurðu að þetta stóra, svarta vatn komi ekki inn í bátinn til okkar og geri fötin okkar blaut, pabbi?“ spurði hann. „Nei nei, hann flýtur ofan á vatninu. Horfðu bara á stóra skipið, sem þú átt að fara með, þá sérðu ekki sjóinn.“ Þá hjúfraði drengurinn sig að föður sínum og lét aftur augun. Kristján fann, hvað litla hjartað barðist af kvíða. Hann reyndi að hughreysta drenginn: „Sjáðu nú bara, hvað við eigum stutt eftir að skipinu.“ „Er ekki mamma þar?“ „Jú jú, hún er komin þangað,“ svaraði Kristján og .178 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.