Heima er bezt - 01.09.1964, Side 23

Heima er bezt - 01.09.1964, Side 23
Þannig gekk þetta vor eftir vor, og jafnan voru marg- ir um ætið. Bátamir vom frá Ólafsfirði, Hrísey, Húsa- vík, Siglufirði og Dalvík. Grímseyingar smnduðu að sjálfsögðu einnig þessa veiði eftir því sem ástæður leyfðu. Landsbátarnir færðu þeim oft beitu, því að yfir- leitt veiddist mjög lítið á færi, meðan þessi viðlegubáta- veiði stóð yfir. Ekki vil ég fullyrða, að allir Grímseyingar hafi litið okkur aðkomumennina hýru auga fyrir þennan veiði- skap. Að minnsta kosti bendir sú frásögn, sem hér fer næst á eftir, ekki til þess. Einn aðkomumanna var nátengdur fjölskyldu nokk- urri í Grímsey og heimsótti hana í frændsemiskyni eitt sinn, er hann var nýkominn. Átti hann að bera Gríms- eyingunum kveðjur og „kompliment“ ættingja, sem í landi bjuggu. En maðurinn sagði sínar farir ekki sléttar, þegar hann kom til baka út í bát sinn, því að frændfólk- ið hafði tekið honum með skömmum og brigzlyrðum, fyrir að leggja hönd að því að stela bjargráðum eyjar- skeggja. Væri óskandi — sagði það —, að himnafaðir- inn léti ekki slíkrar áreitni óhefnt, þar sem í hlut ætti jafnfátækt og einangrað fólk eins og þeir Grímseyingar. Sagðist frændinn hafa orðið þeirri stundu fegnastur, er hann slapp burtu úr húsum skyldfólksins, og kvað fast að um það, að hann skyldi ekki ómaka sig fleiri ferðir til að heilsa upp á eyjarskeggja. Ég hygg þó að svona lagaðar viðtökur hafi fáir feng- ið, og minnisstæð eru mér mörg skemmtileg samskipti okkar og Grímseyinga. Gerðu hvorir öðrum margan góðan greiða og munu mörg og trygg vináttubönd hafa bundin verið á þeim árum, er jafnvel enn endast og ná á vissan hátt milli lands og eyjar. Ekki er hægt að fullyrða neitt um, hvaða árangur gæti nú orðið af svipuðum útróðrum við Grímsey, enda vafamál að nokkur fengist til að sinna þeim. Fiskigöng- urnar eru breyttar frá því sem var, veiðitæknin ekld síður, svo að allt yrði með ólíkum hætti. — Ég fór víst mína seinustu veiðiferð til Grímseyjar vorið 1928 og fékk sáralítið. Svo mun þetta hafa lagzt niður, því að eftir það fóru menn að róa á stærri mótorbátum og með langa línu, að vísu oft í nágrenni Grímseyjar, en engu síður á önnur mið. Á sama tímabili og róðrarnir, sem getið er um hér að framan áttu sér stað, voru gerðar nokkrar tilraunir með hákarlaveiðar í smáum stíl, en eins og kunnugt er lögðust þær veiðar niður að mestu á fyrsta áratug aldarinnar. Menn höfðu að sjálfsögðu gömlu veiðiaðferðina og sams konar tæld og fyrr höfðu notuð verið. Þrír eða fjórir vaðir voru hafðir úti í einu og legið fast við stjóra. Venjulega var fyrst reynt á innstu þekktum hákarlamið- um, undan Landsenda að vestan en á Hjallatánni að austan (þ. e. fram af Gjögri). Legið var á 80-100 faðma dýpi, því að ef orðið hafði vart við hákarl inni á Eyjia- firði, mátti ganga að því nokkurn veginn vísu, að ekld þyrfti á dýpra vatn til að eitthvað veiddist. Til beitu var notað úldið hrossakjöt og óþrátt sel- spik, er þurfti að vera með skinninu á. Stundum notuðu menn líka hnísuspik. Mismunandi lengi þurfti að bíða eftir að sá grái gæfi sig til, en oft voru það 4-6 klukku- tímar. Vaðirnir voru annars ekki hafðir úti lengur í einu en tvær stundir, þá var dregið inn og beitt á ný, til þess að halda við sem sterkastri lykt í sjónum, af því að hákarlinn rennur á ýldulyktina, sem leggur frá beit- unni. Árið 1922 fórum við nokkrir héðan frá Dalvík í há- karlalegu hálfum mánuði fyrir sumar. Við byrjuðum á fyrrgreindum miðum, aðrir að vestan, en hinir að austan, en urðum ekki varir. Veður var hagstætt, svo að við hélduin fljótt fram á svokallaðar Tengur og lögð- umst á 120-130 faðma dýpi. Gátum við legið þarna í ca. 12 tíma. Lítið veiddist þarna, því að sumir fengu ekkert, en aðrir þetta 5-10 hákarla. Urðum við að hætta við svo búið að þessu sinni, sökum óhagstæðrar veðr- áttu, héldum heimleiðis og gátum ekki lagt upp að nýju fyrr en eftir sumarmál. Sunnudaginn fyrsta í sumri var lagt af stað í aðra veiðiferð og fóru þá allir, sem þessa veiði stunduðu frá eyfirzkum höfnum. Sumir héldu strax á Grímseyjarrif, en aðrir fóru vestur á Tengur. Veiddist þá mjög vel og fengu allir fulla báta af vænum hákarli, lögðu hið bráð- asta til lands til að losa, og ætluðu að sökkva aftur upp í stóru ausunni, áður en sá grái hyrfi af miðunum. Þetta fór þó öðru vísi en ætlað var, því að þegar við komum aftur var skolli okkur alveg úr greipum genginn. Fengu engir neitt, sem talizt gæri, og var þar með lokið há- karlaveiðum á þessu vori. Árið 1923 var hafizt handa um svipað leyti, en þá var veðrátta afar óstillt, svo að ekkert féltkst fyrst í stað. Um mánaðarmótin apríl og maí komu allgóð sjóveður og ruku allir þá af stað. Var lagzt á ýmsum stöðum, að- allega vestur og fram af Siglufirði og urðu margir fljót- lega allvel varir. En aðfaranótt 2. maí tók að ausa upp norðaustan stórsjó, og úr hádegi var kominn trylltur sjór. Logn var þó enn, en engin leið að vera lengur við veiði. Spiluðu því allir upp og héldu til Siglufjarðar, flestir. Ekki höfðum við legið lengi þar við bryggjuna, þegar rauk upp norðaustan ofsaveður með blindhríð, er hélzt látlaust í tvo sólarhringa. Urðu margvíslegar skemmdir og nokkrir skiptapar í þessum garði. Hér í Dalvík eyðilögðust tvær bryggjur, enda var brimið með ólíkindum, miðað við árstíðina. Seglskipið Flink, eign Höepfnersverzlunar á Akureyri, strandaði í Haganes- vík, en mannbjörg varð. Mörg skip urðu illa úti og víða urðu skemmdir á landi. Við, sem á bátunum vorum, komumst nú rækilega að raun um, hversu heiftarleg norðaustanveðrin geta orð- ið á Siglufirði. Þar ætlaði allt bókstaflega af göflum að ganga. Víða sviptust þakplötur af byggingum og flugu víðs vegar, jafnvel alla leið inn og upp í Skarðsdal. Slys á mönnum urðu þó ekki. Strax og upp birti héldum við heimleiðis, og með þessari sjóferð var hákarlaveiðiskapur — að minnsta kosti okkar Dalvíkinga — úr sögunni. Heima er bezt 335

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.