Heima er bezt - 01.02.1979, Síða 4
GÍSLIJÓNSSON:
Ekki líkar mér gangurinn
í honum
Komið við hjá bílstjóranum og hermikrákunni
Pétri Jónssyni frá Hallgilsstöðum
M anstu hvenær þú sást bíl í fyrsta sinni?
— Ja, ég kom í fyrsta skipti upp í bíl, þegar Kristján
konungur X. heimsótti landið 1926. Sjálfsagt hef ég séð bíl
fara um veginn áður. Eigandi bílsins átti heima á Akur-
eyri, þetta var Ford-pallbíll sem smalaði fólki úr sveitinni
til Akureyrar að sjá kónginn. Ég fékk að sitja inni í stýris-
húsinu, og ég man það eins og það hefði gerst í gær, hvað
eftirvænting mín var mikil, hvernig bíllinn færi í gang og
hvort hann færi yfirleitt af stað. Ég gleymi því aldrei og
hvað ég fylgdist vel með hvernig eigandinn og bílstjórinn
bar sig til, Ingi Ólafsson hét hann, giftur Sigríði Eyja-
fjarðarsól. Hún var myndarleg og drottningarleg.
Ferðin tókst slysalaust og kóngurinn gekk á land yfir
rauðan dregil. En ekki líkar mér gangurinn í honum, sagði
sveitungi minn, tamningamaðurinn Magnús á Björgum.
Á heimleiðinni voru menn drukknir, og kváðust þeir á
linnulaust, Friðbjörn í Staðartungu og Árni Björnsson
kennari sem að vísu var ódrukkinn eins og endranær.
Davíð á Möðruvöllum átti líka Ford-pallbíl, það var
fyrsti bíllinn í sveitinni. í honum var engin gírstöng, ben-
síngjöfin með handafli og pedalar í gólfinu, annar fyrir
bakk og hinn fyrir framgírinn, en bensíngjöfin tempraði
hraðann. Davíð keyrði þennan bíl sjálfur og mun hafa
fengið hann fyrir 1930.
Á fermingaraldri byrjaði ég að keyra, ekki bíl að vísu,
heldur flutti ég mjólk frá Möðruvöllum og Nunnuhóli á
hestvagni til kaupenda á Akureyri. Mér var fenginn
ágætur hestur sem hét Valur, steingrár á lit. Ég hafði
aldrei komið til bæjarins áður og rataði auðvitað hvorki
eitt né neitt. En ég átti að koma á fimm staði og láta
Hallgilsstaðir.
40 Heima er bezl