Heima er bezt - 01.05.1997, Blaðsíða 38
„Stöðnun er fyrsta skrefið...“
Framhald af bls. 173.
einn byggðarkjami og út frá honum blómstra annexíurnar. í
skjóli öflugs byggðakjama geta smærri samfélög þrifist betur.
Þetta á við allsstaðar, hvort sem við tölum um sveitarfélög eða
fyrirtæki. Við emm öflugri sameinuð. Samgöngur eru ekki nein
hindmn, að maður tali ekki um samskipti með nútíma tækni.
Það er auðvitað ljóst að það munu ekki öll byggðarlög lifa af.
Alla tíð hefur byggð verið að breytast í þessu landi, byggðarlög
að fara í eyði og önnur að byggjast upp. Þannig er þróunin og
það er ekki skynsamlegt að styðja við byggð allsstaðar. Menn
verða að koma sér niður á einhver skynsemismörk í þeim mál-
um. Það er skynsamlegt að stækka sveitarfélögin - það verður á
kostnað einhverra og verður bara að vera það. Breytingar geta
verið sársaukafullar en þetta er og hefur alltaf verið að gerast.
Við köllum þetta þróun.
Jarðgöng
Það er gífurleg þörf íyrir jarðgöng hér milli byggðarlaga og
sjálfsagt kemur að því að hafíst verður handa. Hér er hægt að bora
10-15 göng, sem öll væm skynsamleg, ffá okkar sjónarmiði.
Okkar draumur em jarðgöng ffá Seyðisfírði til Mjóafjarðar og ffá
Neskaupstað til Mjóafjarðar og svo ffá Mjóafirði upp á Hérað.
Þetta væri skynsamleg tenging. Það má hinsvegar alls ekki leggja
niður vinnu við jarðgöng í landinu um tíma, þá glatast mikilvæg
verkþekking.
Þjónusta
Björg.
íbúamir vilja hafa alla þjónustu. Heilbrigðisþjónustan verður
að vera í lagi, við viljum hafa leikskóla, gmnnskóla, ffamhalds-
skóla----. Hér á Seyðisfirði geta bömin ekki lært á fiðlu - það er
enginn fiðlukennari. Á sama tíma hefur kannski fiðlukennari á
Egilsstöðum ekki næg verkefni. Það er ekkert mál að fara hér á
milli og miðla þannig þjónustunni. Þetta gerist ekki nema komi
til sameiningar. Það sama á við um heilbrigðiskerfið, kirkjuna -
hvað sem er. Allt verður miklu auðveldara ef við störfum saman.
Samvinnan er lykill og við tökum ekki á neinu án hennar. Við
verðum að uppræta hrepparíginn. Þegar við vorum að alast upp
var hann mjög mikill en hann hefur minnkað og við upprætum
hann með auknum samskiptum unga fólksins. Þannig er Mennta-
skólinn á Egilsstöðum mjög mikilvægur og hvar hefði átt að
staðsetja hann annarsstaðar. Ég var í stjóm Styrktarfélags van-
gefmna á Austurlandi þegar ákveðið var að byggja upp á Vonar-
landi og fyrsta sambýlið var keypt. Það var sett niður á Egils-
stöðum, því þar var talið hentugast að hafa það. Þá var verið að
gefa fólki kost á að vera í sínum landshluta en áður höfðu allir
verið sendir til Reykjavíkur. Nú hefur verið stigið eitt skref í við-
bót og áhersla lögð á að fólk geti verið í sinni heimabyggð. Með
aukinni þekkingu, samvinnu og samstarfi er svo margt hægt, sem
menn sáu ekki áður. Áður varð gamalt fólk, allstaðar að af Aust-
urlandi, að koma hingað til Seyðisfjarðar og eyða síðustu ámm
ævinnar á sjúkrahúsinu hér. Það var slitið úr tengslum við fjöl-
skyldu og vini. Nú er fólki gert kleift að ljúka ævinni í sinni
heimabyggð og bannig á bað að vera. En við verðum að snúa
I
Skíðadeild Hugins á Seyðisfirði heimsótti Björgu á
afmælisdaginn með glöðum söng.
bökum saman. Sveitarfélögin em orðin langt á eftir tímanum.
Sjómenn búa ekki lengur í útgerðarstað skipsins, sem þeir em á.
Þeir geta búið hvar sem er. Það em góð frí milli túra og það tekur
örskamma stund að komast milli landshluta. 5 iðnaðarmenn ffá
Egilsstöðum hafa unnið hjá Stál í tæp 2 ár. Þeir keyra á milli
daglega og hafa aðeins einu sinni þurft að vera heilan dag frá
vinnu vegna veðurs og ófærðar og einu sinni hálfan dag. Þessir
menn borga auðvitað skattana í sínu heimabyggðarlagi og það
gera togarasjómennimir líka. Sveitarfélög sem þannig er ástatt
fyrir missa tekjur og lítið byggðarlag, sem treystir meira og
minna á útgerð eins togara, getur setið uppi með hálffóman kassa
og þá er lítið efltir til að byggja upp og veita þá þjónustu sem þarf
allsstaðar að vera. Ef sveitarfélögin em stækkuð skiptir búsetan
minna máli og bættar samgöngur auðvelda þetta. Fyrir 20 árum
lokaðist Fjarðarheiði í fyrstu snjóum á haustin og opnaðist aftur
þegar snjóa leysti á vorin. Nú er hún opnuð 7 daga vikunnar.
Þetta em gjörbreyttar aðstæður, sem við þurfum að laga okkur að
og nýta.
Theódór.
Annars er búið að tala nóg um sameiningu, þar er ekkert
ósagt. Við þurfum að komast út úr þessu fari og það er ekki
nema ein leið til þess. Þetta verður aldrei gert nema af æðstu
stjómvöldum landsins. Það er tvímælalaust kominn tími til að
sameina með lagasetningu. Það gengur aldrei upp að standa í
þessum kosningum, það sést best á því sem hefur verið að gerast
á Héraðinu á síðustu mánuðum. Það hefur líka sýnt sig að
minnstu einingamar segja nei og á ýmsum forsendum. Fyrst og
ffemst ræður þó skammsýni og ótti við að verða að engu. Menn
átta sig bara ekki á því að það er ekki úr neinum söðli að detta,
þessi litlu sveitarfélög em ekkert nú þegar. Það verður bara að
hafa vit fyrir fólki.
Ætli brýnasta verkefhið nú sé ekki að byggja íþróttahús, enda
er það líklega næsta stórverkefni bæjarins. Að öðm leyti er auð-
vitað brýnast að ná vopnum sínum á nýjan leik eftir það mikla
hrun, sem hefur orðið á síðustu ámm. Fyrir örfáum ámm vom
hér tvö frystihús, nú er bara eitt eftir. Fyrir örfáum ámm vom hér
tvær loðnubræðslur, nú er bara ein effir. Hér vom tvær vélsmiðj-
ur og er bara ein effir. Hér vom þrír skuttogarar en nú er bara
198 Heima er bezt