Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1997, Blaðsíða 35

Heima er bezt - 01.05.1997, Blaðsíða 35
Levítinn forðum. Honum finnst kennslukonan vera sporgöngumaður hins miskunnsama Samveija. Slík ffamkoma vekur aðdáun hans meira en nokkuð annað. Samleið með slíkri konu... Hann hugsar þessa hugsun ekki til enda. En hann mun ekki bregðast trausti Glóeyjar Mjallar. 10. feafli. Hækkandi sól fer markvissa sigurför gegn myrkraveldi vetrarins. Bjartir ylgeislar bræða smám saman helkalt hjam og leysa nýtt líf úr læðingi. Gló- ey Mjöll situr þungt hugsi við kenn- araborð sitt. Ómur frá glaðværum bamsröddum berst til hennar að utan. Nemendur em að leik á skólalóðinni í síðasta stundarhléi dagsins og óðum líður að kennslulokum vetrarins. Hún verður að gera eitthvað róttækt í mál- um Bergrósar, við svo búið má ekki lengur standa. Þrátt fyrir þau skilaboð, sem hún sendi móður hennar með Bóasi í síðari ferð sinni á heimili þeirra, hefur ekkert breyst til batnaðar með heimanám telpunnar og hún er hætt að vænta nokkurs úr þeirri átt. Hún ákveður nú að taka málin alfarið í eigin hendur. Að loknum skóladegi ætlar hún að hafa telpuna með sér heim í leiguherbergi sitt og vinna sjálf með henni heimaverkefnin. Sleppa Bergrósu ekki til föðurhúsanna fyrr en hún hefur lokið þeim dag hvem, frarn að vorprófum. Rísi móðir telpunnar upp gegn þessu örþrifaráði hennar, skal hún óhrædd svara til saka. Skólabjallan klingir. Leiktímanum er lokið og nemendur hefja nám að nýju... * * * Síðasta kennslustund dagsins er á enda runnin. Börnin búast til brottfar- ar. Þau kveðja Glóeyju Mjöll hvert af öðm og hverfa á braut. Bergrós kemur að venju síðust til að kveðja. Hún og kennslukonan eru orðnar tvær eftir í skólastofunni. Glóey Mjöll tekur mjúklega um útrétta hönd telpunnar og lítur rólega á hana. - Bergrós mín, segir hún hlýjum rómi. - Nú ætla ég að bjóða þér að koma með mér þangað sem ég bý. Þú átt að vera gestur minn. Við skulum hjálpast að því að vinna heimaverk- efhin þín. Þá geturðu skilað þeim full- gerðum á morgun, um leið og hin bömin í bekknum skila sínum. Held- urðu að það verði ekki gaman? Telpan horfir í fyrstu þögul og ráð- villt á kennslukonuna. Víst langar hana til að skila daglega sínum skylduverkefnum eins og bekkjar- systkini hennar gera, en hún getur það ekki hjálparlaust. Þau örfáu skipti, sem hún hefur haft sitt á hreinu, hefur henni liðið óvenju vel í sálinni. En að fara með kennslukonunni í alókunnugt hús, vekur hjá henni óljósan ótta og enn meira öryggisleysi og hvað skyldi mamma hennar segja, svíkist hún um að koma strax heim úr skólanum til að gæta tvíburanna? Hún er líkt og á milli tveggja elda. Glóey Mjöll skynjar baráttu telpunnar. Hún bíður ekki lengur eftir svari og heldur áffarn máli sínu: - Bergrós mín, þú þarft ekkert að óttast, segir hún þýtt og traustvekjandi. - Ég tek þetta á mína ábyrgð og svara fyrir það, bæði foreldrum þínum og öðmm ef þörf krefur. Ég fylgi þér heim á eftir. Ætlarðu nú að reyna að treysta mér? Telpan kinkar kolli til samþykkis. Þær ganga fram úr kennslustofunni og út úr skólahúsinu. Jafhskjótt og stefn- an er tekin heim á leið, læðir Bergrós höndinni með hægð í lófa kennslukon- unnar en hún tekur vel á móti og þær leiðast hönd í hönd að húsi kaupfé- lagsstjórans. Glóey Mjöll heldur rak- leitt með telpuna inn í herbergi sitt. Miðdegisdrykkurinn, sem alltaf er til reiðu í borðstofunni við heimkomu hennar úr skólanum, verður að bíða í þetta skipti þar til hún hefur afgreitt Bergrósu og fylgt henni heim. Hún er líka vel sátt við að sleppa honum með öllu. Glóey Mjöll losar telpuna við yfir- höfnina og vísar henni til sætis við vinnuborð sitt. Bergrós sest. Augu hennar hvarfla um vistarveruna. Allt er hreint og fágað í látleysi sínu, and- rúmsloftið undur friðsælt og notalegt, nokkuð, sem er nýstárlegt fyrir henni. Á meðan þær stöllur raða náms- gögnunum á borðið, er drepið að dyr- um. Telpan hrekkur í kút og lítur flóttalega til dyra. - Hér er ekkert að óttast, Bergrós mín, segir Glóey Mjöll og brosir upp- örvandi til telpunnar. - Þetta er senni- lega frúin. Hún gengur til dyra og lýkur upp. Frú Lena stendur fýrir framan dymar. - Móðir þín hringdi hingað nokkm eftir hádegið, segir hún fremur stutt í spuna. - Hún hefur víst haldið að þú værir komin frá kennslunni. Þú átt að hafa samband við hana eftir klukkan fimm í dag, þá verður hún heima. Hún lét þess getið að ekkert alvarlegt væri á seyði. - Þakka þér fyrir frú Lena, svarar Glóey Mjöll hæversklega. - Afsak- aðu... Lengra kemst hún ekki. Frúnni er litið inn í herbergið og grípur þegar fram í: - Hvaða krakki er þetta? spyr hún snöggt og pírir augun á Bergrósu, sem hniprar sig saman í sætinu við spum- ingu frúarinnar, eins og hún vilji helst hverfa með öllu. - Telpan er nemandi minn, Bergrós heitir hún, svarar Glóey Mjöll rólega. - Hún verður héma síðdegis í tíma hjá mér fram að vorprófum. Frúin ansar þessu engu, athygli hennar beinist öll að telpunni. - Hver á þennan krakka? spyr hún næst með vaxandi forvitni. - Bóas og Sölvína heita foreldrar hennar, svarar Glóey Mjöll eilítið undrandi yfir þessum greinilega áhuga frúarinnar á telpunni. - Það kannast víst flestir hér í Súlna- vogi við Bóas Jensen, segir frú Lena með hrylling í rómi. - Svo þetta er dóttir hans Bóasar. Aumingja barnið! Taktu telpuna með þér fram í borð- stofu, þar er nóg á borðum handa ykk- ur báðum, bætir hún við óvenju mild í Heima er bezt 195

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.