Æskan - 01.02.1969, Side 13
Lestu Bibliuna.
Verðlaun Vikudvöl í sumar-
búðum KFUM í
Vatnaskógi,
Vikudvöl í sumar-
búðum KFUK í
Vindáshlíð.
Aldurstakmark: 10—15 ára.
Þættir þessir verða aðeins 4.
Safnið svörunum saman og
sendið þau öll í einu eftir
birtingu síðasta þáttarins.
í jólablaði ÆSKUNNAR hófst nýr
verðlaunaþáttur, sem nefndur hef-
ur verið „Lestu Biblíuna“. Reglur
eru afar einfaldar. Lesinn er stuttur
kafli úr Gamla eða Nýja testament-
inu og fáar spurningar að lokum.
Eftir fjóra þætti safnið þið svörun-
um saman og sendið til Æskunn-
ar. Aldurstakmark er frá 10 ára til
15 ára.
Fyrir fáeinum árum gengu fjórir
piltar heim á leið frá dansæfingu í
skólanum. Galsi mikill hafði hlaup-
ið í þá og datt þeim ýmislegt í hug
á leiðinni.
Allt í einu stakk einn þeirra upp
á því, að þeir skyldu kaupa sér
sígarettupakka, og væru þeir
„dauðans aumingjar“, gætu þeir
ekki lokið við að reykja hann allan.
Enginn vildi verða „dauðans
aumingi", nema einn. Hann sagði:
„Ef þið reykið, fer ég.“
Hinir hlógu hálf skrítnum hlátri,
horfðu á hann ofurlitla stund, undr-
andi hálf yfir dirfsku hans. Einn
þeirra tók þó af skarið og sagði:
„Hlauptu þá heim til mömmu, litli
engill."
Og „litli engillinn" eða „dauðans
auminginn", eins og þeir kölluðu
hann líka, gekk rólegur heim á leið,
þó að hann væri í miklum vafa um,
hvort hann ætti að skilja við félaga
sína.
En hver skyldi í rauninni hafa
verið hugrakkastur þeirra þetta
kvöld?
Djörfung.
Nú langar okkur til þess að biðja
þig að lesa fyrsta kaflann í Daníels-
bók í Gamla testamentinu.
Af þessari stuttu frásögn er
margt hægt að læra, en við skul-
um ekki rekja það hér. Þið sjáið,
að þessir fjórir vinir, sem áttu að
þjóna heiðna konunginum, voru
samhentir og samhuga.
Þegar í upphafi mæta þeim al-
varlegar freistingar, þegar borið
var á borð fyrir þá matur og vín,
sem bannað var að neyta í Gamla
testamentinu.
Heiðni konungurinn var grimm-
ur og óvæginn. Hann þekkti hvorki
siði þeirra né trú. Hann var vís til
alls.
Ekkert var því auðveldara fyrir
þá, en að gera allt eins og þeim
var boðið og komast hjá öllum ó-
þægindum!
En hvílíkt hugrekki var þessum
unglingum gefið! Enginn vildi snúa
baki við öðrum. Þeir stóðu saman
í þessari raun.
Við sjáum líka í kaflanum, hver
það var í rauninni, sem gaf þeim
þessa miklu djörfung, og árang-
urinn kemur einnig í Ijós síðar.
Við eigum áreiðanlega vini. Ef
til vill marga. Hvernig eru þeir?
Góðir félagar? Slæmir? í meðal-
lagi?
Sumir unglingar hafa því miður
lent út á hættulegum brautum og
hlotið djúp sár í æskuminningar
sínar, er þeir völdu sér slæma fé-
laga, sumir jafnvel hlotið sár, sem
aldrei gróa. Þorðu að rjúfa sam-
band við slæma félaga þína og
sýna þeim gott fordæmi.
Góðir vinir eru gulli betri og geta
orðið okkur dýrmætari, en okkur
grunar á æskuárunum.
Spurningar:
1. Hvað hét hirðstjóri heiðna kon-
ungsins?
2. Teljið upp alla þá kosti, er
sveinarnir áttu að vera búnir,
sem hirðstjórinn átti að velja.
3. Skrifið orðrétt upp 8. versið í
þessum kafla.
4. Hvernig er unnt að sjá beint
svar við því, „hver hjálpaði
þeim félögum í rauninni" ein-
hvers staðar frá versi 3—10?
i
Þá eru aðeins eftir tveir kaflar í
þessum verðlaunaþætti.
77