Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1969, Síða 19

Æskan - 01.02.1969, Síða 19
Máltíð á Park Hóteli í Voss. Emil og Þorkell. ræðinn, og er hann heyrði, að þar væru Islendingar á ferð, sagði hann, að á þessum stað ynnn tvær islenzkar stúlkur, og mundi hann sjá svo um, að að minnsta kosti önnur þeirra gengi um beina við horð ferðafélaganna. Þessi gisti- staður, sem liét nú reyndar því alþjóðlega nafni Park Hotel, reyndist hafa upp á ágætan mat að bjóða, og þegar Anna Káradóttir birtist við borðið í hvitum þjónsjakka með logagytltum borðum og leggingum, þótti þeim Þor- keli og Emil mikið lil koma. Það var gaman að hitta landa sinn á svona ágætuin stað. Anna Káradóttir sagðist vera í 2. bekk Kennaraskólans og vinna þarna yfir sumarið. Hún ætlaði að vinna til 15. september en fara þá heim ásamt stöllu sinni, Þóru Kristjánsdóttur, sem þarna vann iíka. Þóra kom von bráðar, og í sameiningu báru þær ís- lendingunum, þeim fyrstu sem þær böfðu liitt frá því þær fóru að lieiman, ágætan málsverð. Ráðgert var, að þeir Emil, Þorkell, Grímur og Sveinn liéldu aftur til Gslóar með járnbrautarlestinni, „Bergens- brautinni“, sem Norðmenn kalla svo, kl. 16.25 þennan dag. Þau Gunnvör og Tryggvi liöfðu ýmsum störfum að sinna fyrir blaðið, sem þau unnu lijá, Aftenposten, og því mundu íslendingarnir kveðja þessa ágætu ferðafélaga í Voss. Áður ætluðu þau samt að slcoða byggðasafnið og þangað béldu þau að lokinni máltíðinni á Park Hotel. Byggasafnið í Voss, sem Norðmenn reyndar kalla „Folkemuseum“, lieit- ir Mölstertunet; þetta er forn bóndabær, sem stendur í hliðinni fyrir ofan bæinn og samanstendur af mörgum fornum byggingum úr tinibri. Miðaldra maður i þjóðbún- ingi tók á móti þeim við bliðið, og sá vissi nú lengra en nef bans náði. Hann útskýrði og sagði frá; sýndi bin og önnur bús, liúsbúnað og sögulegar minjar. Þeir sáu ýmsar gerðir af ílátum og handverkfærum frá fyrri timum, og maöurinn i þjóðbúningnum, sem allt vissi og útskýrði, féll mætavel inn í jiessa mynd. Elztu húsin í Mölstertunet eru 400 ára gömul, en mörg yngri. Að lokum var farið upp á loft i einu liúsinu, og Norðmaðurinn í þjóðbúningnum sagði, að nú værum við komin i „Jenteloftet". Þarna i „Jenteloftet" eða Jómfrúrbúrinu, eins og tslendingarnir íslenzkuðu það, gat að lita mikið safn af alls konar klæðn- aði l'rá fyrri timum. Norðmaðurinn sagði frá því, að jiegar ung heimasæta trúlofuð ungum manni, kannski á næsta bæ, lijóst til þess að gifta sig, þá gáfu foreldrarnir henni stóra og myndarlega kistu, hvar í hcimanmundurinn var látinn. Heimanmundurinn fór eftir efnum og ástæðum foreldranna, en kistuna fékk stúlkan, hvernig sem á stóð. Þarna á loftinu voru nokkrar slíltar kistur, „og,“ sagði Á járnbrautarstöðinni í Voss. Grímur, Gunnvör, Tryggvi, Emil og Þorkell. Norðmaðurinn, „hér var tekið á móti liinum verðandi tengdasyni í fyrsta sinn. Tengdasonurinn tilvonandi kom í lieimsókn var leiddur i loftið og þarna tóliu tengdafor- eldrar og kærasta á móti honum.“ Ýmsa merkilcga gripi sáu þeir þarna og fatnað, meðal annars ullarsokka, sem styrktir voru með mannshári. Enn aðra, sem styrktir voru með hrosshári og fleira og fleira, sem of langt yrði upp að telja. En nú var komið að kveðjustundinni. Þau flýttu sér að kveðja Mölstertunet og óku rakleitt að járnbrautar- stöðinni í Voss. Það stóðst á endum, að lestin rann inn á stöðina. íslenzku ferðafélagarnir kvöddu þau Gunnvöru Gjessing og Tryggve Kristiansen með virktum. Þökkuðu þeim frábært leiðsögustarf og Tryggva afburða akstur um mjóa og viðsjárverða vegi og báðu fyrir kveðjur til Reidar Lunde ritstjóra Aftenposten. Og um leið og lestin raun út af brautarstöðinni í Voss stóðu þau Gunnvör og lryggvi á brautarpalUnnm og veifuðu. Nú tók við járnbrautarferðalag, og það vav nýnæmi fyrir þá Emil og Þorkel. Þeir höfðu sem sé aldrci k unið i slikt farartæki áður. Eftir að liafa skoðað sig um i vngn- inuin og liorft á útsýnið meðan ekið var út úr b.cnum, beindisl athygli þeirra að ferðafélögunum. Þarna var fólk á öllum aldri. Kornabörn, miðaldra fólk og öldungar. Tvær gamlar konur sátu til hliðar við þá Emil og Þorkel og höfðu stórar körfur i kjöltu sinni. Þær fóru með litlu millibili ofan i körfurnar, tóku upp kaffibrúsa og borðuðu án livílda. Fyrir aftan þær sat ung stúlka og við hlið hennar piltur, sem spilaði á gítar. Þau spiluðu lágt og sungu og söngurinn rann saman við reglubundinn slátt lijólanna, er þau mættu samskeytum brautarteinanna, og þetta varð eins og taktsláttur í löngu og miklu tónverki. Ungi maðurinn með gitarinn liélt áfram að spila og stúlk- an lians að syngja og gömlu konurnar mauluðu brauðið sitt, en nú þyngdi í lofti og brátt tók að rigna. Drengirnir skoðuðu það sem fyrir augu bar, og þar sem járnbrautin beygði, sáu þeir að glampaði á teinana í væt- unni. Lestin bélt stöðugt hærra og bærra og þeim fannst lauf trjánna við brautina skipta um lit eftir þvi sem lengra leið og hærra dró. Lestin nam staðar á lítilli járn- brautarstöð. Viðstaðan var stult. Nokkrir farþegar stukku ú( á pallinn og aðrir hröðuðu sér inn, og svo mjakaðist lestin af stað aftur. Þetta endurtók sig nokkrum sinnum. En allt i einu varð koldimmt í vagninum. Lestin liafði farið inn í jarðgöng. Jarðgöng á leiðinni milli Voss og Oslóar eru æði mörg, ef talið er með, þar sem byggt er yfir brautarteinana vegna lnettu á snjóflóðum. 83

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.