Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1969, Síða 10

Æskan - 01.04.1969, Síða 10
* „Krakkar lit kátir tioppa" ■& LjóS: MARGRÉT JÓNSDÓTTIR é G Krakkar út kátir hoppa D7 úr koti og höll, léttfættu lömbin skoppa G um laut og völl. Smalar í hlíðum hóa C sitt hvella lag. D7 G Kveður í lofti lóa D7 G svo léttan brag. G Vetrarins fjotur fellur, D7 þá fagnar geð. Skólahurð aftur skellur G og skruddan með. Sóleyjar vaxa í varpa C og vorsól skín. D7 G Velkomin vertu, Harpa, D7 G með vorblóm þín. halarófa var það, sem var á ferðinni uppi á brún Austur- hæðanna? Þar voru á ferð fimmtíu svartir menn, vopnaðir spjótum og bogum og báru örvamæli á baki. Oddar spjót- ana og örvanna voru roðnir bráðdrepandi eitri. Upp úr hári þeirra stóð fjaðrabrúskur og í miðnesinu var hringur. Margir þeirra voru málaðir með stríðsmálningu, sem voru einkum strik í andliti. Á eftir hermönnunum kom hópur af konum og börnum, sem báru alls konar bús- hluti. Þar á eftir kom svo aftur hópur af hermönnum. Þeir skimuðu mikið aftur fyrir sig, og var að sjá sem þeir ættu von á árás úr þeirri átt. Þessi ílokkur villimanna var að flytja búferlum eftir árás, sem þeir höfðu orðið fyrir af liendi fílabeins-safnara. Þessir svörtu menn liöfðu því tekið sig upp ásamt kontim sínum og börnum og leituðu nú að landsvæði, þar sem liægt væri að búa í friði fyrir hvítum fílabeinskaupmönnum og fylgdarmönnum þeirra, sem brennt höfðu kofa þeirra og drepið marga. I vikutíma ltélt þessi lest í vesturátt og nam loks staðar við stóran læk, þar sem álillegt rjóður var í skóginum. Þarna tóku þeir sér bólfestu og tóku til við að reisa strákofa og gera skíðgarð umhverfis. Höfðingi þessa flokks hét Monga og var nokkuð við aldur. Dag nokkurn var Kulonga, sonur Monga, á veiðiferð í skóginum og hélt í vesturátt; hann var með spjót sitt og boga að vopni. Þegar kvöld var komið, var Kulonga langt inni í skógarþykkninu og tók sér náttstað uppi 1 stóru tré. Nokkru vestar sváfu aparnir í flokki Kerchaks. Aparn- ir fóru snemma á stjá og tóku að leita sér að fæðu. Tarzan hélt að venju beint til kofans, en saddi þó hungur sitt á leiðinni. Kala fóstra lians fór ein sér hægt í austur eflir fílagötu. Allt í einu sá hún að ókunnugt svart dýr var framundan í götunni. Hún sneri sér þegar við og hélt til baka, en á hælum hennar var Kulonga með spjót sitt í uppréttri hægri hendi. Hér var væn veiði, hugsaði liann og herti á eftirförinni. Spjót lians fló gegnum loftið í stefnu á Kölu. Það hitti ekki, en þetta var þó nóg til þess að Kala sneri við fokreið og bjóst til að ráðast á þennan svarta apa, sem veitti henni eftirför. Reiðiöskur hennar kallaði þegar á allan apaflokkinn og brátt heyrðist braka í irjágreinum í grenndinni undan hinum stóru og þungu karlöpum, sem nú komu á mikilli ferð, til þess að veita Kölu lið. 186

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.