Æskan - 01.04.1969, Blaðsíða 16
Hvaðan kemur það?
DÖÐLUR
Döðlurnar eru ein aðalfæða
Araba og í Arabalöndunum vaxa
þær villtar á pálmatrjánum.
Döðlur eru aldin af döðlupálma.
Aldinin, sem eru beraldin með
einu fræi, eru plómustór og gul-
brún, rauð eða rauðbrún.
Fræin eru ílöng, notuð sem
skepnufóður (t. d. handa úlföld-
um), eða þau eru brennd og
notuð sem kaffilíki. Döðlur eru
mikið notaðar hráar til matar á
þeim stöðum, þar sem þær eru
ræktaðar eða vaxa villtar, en
þola ekki flutning til Norður-
Evrópu. Þær eru þar hafðar á
boðstólum þurrkaðar, og eru
þær ýmist þurrkaðar úti eða í
heitum klefum. Þurrkaðar döðl-
ur eru gljáandi á yfirborðinu og
sléttar, rauðgular á litinn, húðin
þunn, og er aldinkjötið rauð-
leitt en verður Ijósara, þegar
nær dregur kjarnanum, kjarn-
inn losnar vel úr aldinkjötinu.
Döðlur eru mjög bragðgóðar og
sætar.
FÍKJUR
Fíkjur (gráfíkjur) eru skinaldin
af fíkjutré. Þær eru perulagað-
ar, á stærð við lltlar perur og
Ijósar, grænleitar, brúnleitar eða
dökkbláar á litinn. Þær eru sæt-
ar á bragðið, mjög bragðgóðar,
en þola mjög illa geymslu, svo
að þær sjást sjaldan í Norður-
Evrópu. Þar eru þær hafðar á
boðstólum niðursoðnar, en þó
aðallega þurrkaðar, og eru þær
ýmist þurrkaðar úti eða í uþp-
hituðum klefum. Þær eru eink-
um notaðar til matar, en lélegar
tegundir brenndar og notaðar
sem kaffilíki.
„Hvers vegna? .. .“ spurði prinsinn. „Hvers vegna er blóm fegurra en karfa
með kartöfluhýði?"
Stúlkan hætti starl'i sínu andartak og hugsaði sig um. Svo sagði liún:
„En er er það víst, að blóm sé fallegra en karfa með kartöíluhýði? Ertu viss
um það?“
Og prinsinn horfði og fann, að karfan á hnjám hennar var fallegri en
öll blóm veraldarinnar. Einkennilegt var það, en svo fannst honum það samt,
án þess að vita hvers vegna. Hann vissi aðeins, að þessi stúlka átti hugsanir.
Hann tók blíðlega undir hönd lienni og þau gengu saman eftir grænum
grundum heim. Prinsessunni í bátnum hafði hann gersamlega gleymt og þegar
hann kom inn í liöllinna með fátæku stúlkuna, sagði hann við föðurinn,
sem sat sofandi í hásætinu: „Faðir minn, þetta er unnusta mín. Hún lrugsarl”
„En, drengur minn,“ hrópaði konungurinn kvíðandi. „Þú átt unnustu
fyrir! Og þessi .... og þessi er óþrifaleg stúlka. Með kartöfluhníf í hend-
inni! Hvað heldurðu að fólkið segi? Og svona óhrein föt!“
„Auðvelt að bæta úr }:>ví,“ sagði prinsinn. „Nóg er til af kjólum í heimin-
um.“ Meðan á þessu stóð kom kammerherrann. Honum varð bylt við, er hann
sá stúlkuna og hrópaði: „Hunangsfluga! Stór, brún hunangsfluga kringum
höfuð hennar! Hún er með vonda hugsun!"
„Ekki nema eina?“ sagði prinsinn hlæjandi. „Um hvað varstu að hugsa,
elskan mín?“
Stúlkan roðnaði og sagði: „Ég hugsaði: eins og heimskur konungur,
hverju máli skiptir, hvað menn muni segja!“
„Heyrirðu?" hrópaði kammerherrann æstur. „Hér er vond hugsun.“
„Betri en engin liugsun," sagði prinsinn og hann kyssti stúlkuna hversu
óhrein sem hún þó var. Þá varð hún að baða sig og strax á eftir var hjóna-
vígsluhátíðin haldin.
Brúðarförin lagði leið sína fram með ánni og nýi eiginmaðurinn sá, sér til
stórvandræða, að prinsessan fagra sat enn og beið í bátnum. „Ég gleymdi
henni alveg!“ hrópaði hann. „Biddu hana að setjast i aftasta skrautvagninn."
Þetta var gert og prinsessan var ánægð og hugsaði ekki frekar um það, sem
var að gerast, því hún hugsaði bara aldrei neitt.
Brúðarförin liélt til kirkjunnar og allir voru hamingjusamir, að undan-
skildum kammerherranum. Hann sló stafnum möglandi í kringum sig:
„Alls staðar skorkvikindi í kirkjunnil Tordýflar, vespur, bláflugur og brodd-
flugur .... Svei .... Svei!“
(Úr csperanto. K. G.)
Sögur fyrir börn
Hér birtast 13 smásögur fyrir börn,
eftir hið heimsfræga rússneska
skáld Lev Tolstoj, í þýðingu Halldórs
Jónssonar ritstjóra. Sögurnar heita:
Litla stúlkan og svepþirnir, Kettling-
urinn, Plómusteinninn, Fuglinn,
Ósannsögli drengurinn, Tveir vinir,
Svanirnir, Fíllinn, Spörfuglinn og
svölurnar, Arnarmóðirin, Hákarlinn,
Heljarstökklð og Ljónið og hvolpur-
inn.
Allt eru þetta fallegar og skemmti-
legar sögur, prýddar mörgum fögr-
um myndum.
f lausasölu kr. 53.75. Til áskrif-
enda ÆSKUNNAR kostar bókin að-
eins kr. 37.00.
192