Æskan - 01.04.1969, Blaðsíða 41
Hvað viltu verða?
I bréfi frá stúlku á Dalvík er beðið um
uPplýsingar um Fóstruskólann í Reykjavík
°9 fleira viðvíkjandi fóstrustörfum. Þessi
skóli — Fóstruskólinn — er sá eini sinnar
tegundar hér á landi. Hann er starfræktur
af Barnavinafélaginu Sumargjöf og er til
húsa að Fríkirkjuvegi 11, Reykjavík. Skóia-
stjóri er frú Valborg Sigurðardóttir og síma-
númer skólans er 21688.
Stúlkur, sem sækja vilja um nám f Fóstru-
skólanum, þurfa að vera 18 ára eða eldri
°9 hafa landspróf, gagnfræðapróf eða aðra
hliðstæða menntun. — Þær námsgreinar,
sem kenndar eru í skólanum, eru m. a.
þessar:
fræði og mun árangur þess og með-
mæli forstöðukonu skera úr um, hvort
forskólanemi fái inngöngu í Fóstru-
skólann haustið 1970.
Nám f Fóstruskólanum tekur tvo vetur
og eitt sumar. Þetta sumar vinna stúlkurnar
við fóstrustörf og fá þá laun, sem eru %
af byrjunarlaunum lærðrar fóstru. I Reykja-
vik munu nú vera nær 20 leikskólar, dag-
heimili og vöggustofur. Má segja, að at-
vinnuhorfur fyrir fóstrur séu góðar, en laun
munl þær taka eftir 13. launaflokki.
1. Sálarfræði.
2. Uppeldisfræði.
3. islenzka.
4. Danska.
5. Næringarefnafræði.
6. Heilsufræði.
7. Ungbarnameðferð.
8. Þjóðfélagsfræði.
9. Bókfærsla.
10. Teiknun.
11. Föndur.
12. Smíðar.
13. Söngur.
14. Sögur og kvæði.
Næsta haust, 1969, tekur tll starfa for-
skóli Fóstruskólans og verður honum hag-
að þannig:
í smíöastofunni.
Störf við leikskóla, vöggustofur
og dagheimili fyrir BÖRN —
1. í septemþer verður haldið tveggja vikna
námskeið í uppeldisfræði, föndri, barna-
sögum, söngvum o.fl.
2. Frá 1. október til 1. maí, eða í 7 mán-
uði, starfa forskólanemar á barnaheim-
ilum Sumargjafar, laun fyrir þann tima
nánar ákveðin síðar.
3. í lok starfstímans, eða í mai 1970, munu
nemendur ganga undir próf í uppeidis-
Nú mætti spyrja: „Hvaða kostum þarf
góð fóstra að vera búin?“
Hún þarf að vera barngóð að eðlisfari
og vel hraust, bæði likamlega og andlega.
Hún þarf að vera glaðlynd og helzt söng-
hneigð. Gott er fyrir hana að kunna að
spila, t. d. á gítar. Fóstran þarf að vera
viðmótshlý, bæði gagnvart börnunum og
aðstandendum þeirra og samvizkusöm f
bezta lagi. Hún þarf að vera vökul í starfi
sínu og lagin við að skipuleggja leiki barn-
anna og kenna þeim að fara eftir settum
reglum. Hún laðar börnin til þess að tala
sem réttast mál og leitast við að auka orða-
’forða þeirra. Góð fóstra er bæði uppalandi
og fræðari f senn.
Aðsókn að Fóstruskólanum mun vera
nokkuð mikil og eru nemendurnir víðsvegar
að af landinu. Það er þvf bezt fyrir þær
stúlkur, sem hug hafa á þessu starfi, að
sækja um skólavist með nægum fyrirvara.
Að lokum má geta þess, að þættinum
„Hvað viltu verða?" hafa nú borlzt mörg
bréf. Verða bréfritarar að vera þolinmóðir,
þótt ekki fái þeir svör strax.
G. H.
217