Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1969, Síða 19

Æskan - 01.04.1969, Síða 19
 Heimska stúlkan Dag nokkurn gekk stúlka eftir götunni. Hún bar á höfði sér krukku fulla af mjólk. Á götunni hugsaði hún sér: ,,Ég kaupi mér egg fyrir peningana, sem ég fæ fyrir mjólkina. Ég kaupi þrjú hundruð egg. Úr þrjú hundruð eggjum fæ ég að minnsta kosti tvö hundruð kjúklinga. Þegar kjúklingarnir hafa ald- ur til, sel ég þá á markaðinum. Fyrir peningana, sem ég fæ fyrir þá, kaupi ég mér kjól. Hann á að vera .... við skulum sjá til. Ég held, að blátt fari mér vel. Ég klæðist nýja kjólnum, þegar ég fer á dansleik, og ég verð svo falleg í honum, að allir ungu menn- irnir koma og þrábiðja um að fá að dansa við mig. En ég reigi mig bara og fer mina leið.“ í hugsunum sínum sveigði hún höfuðið aftur á bak, og krukkan datt niður og þar með brugðust vonir hennar. Enginn ætti að telja kjúklingana fyrr en þeir eru komnir úr eggjunum. I í i I i i i i' Dómari i keppni sjón- varps á NorOurlöndum. "'nrik Bjarnason. Múna á nœstunni, eða nánai' tiltekið sunnudaginn líi. upríl, hófst í sjónvarpi á Norð- urlöndum spurningakeppni 12 ára skólabarna. I'essi keppni heitir „Kerlaufasmári", af ]>ví að Iöndin eru fjögur, sem taka þátt í henni: Danmörk, Finn- land, Noregur og Svíþjóð. Þvi miður er ísland ekki með, þvi þetta er svokölluð bein send- ing; þá sjá áhorfendur allt á samri stundu og það gerist. A þann hátt er hvorki hœgt að senda eða taka við sjónvarps- efni frá íslandi ennþá, því geislinn, sem her sjónvarps- myndina, hefur ætíð heina stefnu. Aftur á móti var is- lcnzkur sjónvarpsmaður beð- inn um að vera keppnisstjóri og dómari í keppninni, og hann heitir Hinrik Bjarnason. Þessi keppni fer þannig fram, að liópur skólabarna frá einum skóla safnast saman i sjón- varpssal i liöfuðhorg síns lieima- lands: Ifaupmannahöfn, Hel- sinki, Osió og Stokkhólmi. Svo situr dómarinn i sérstökum „dómarasal“ í Stokkhólmi. Hann stjórnar gangi keppninn- ar og gefur stig, og hann talar aðallega „skandinavísku", sem vonazt er tii að dönsk, norsk og sænsk hörn skilji, en af J>ví að finnska er svo gerólik mál- um annarra Norðurlandabúa hefur dómarinn aðstoðarstúlku, sem þýðir mál hans á finnsku. Hún lieitir Tuula Ignatius og er þulur i finnska sjónvarpinu. Og í Stokkhólmi er líka aðalstjórn- andi þáttanna, sem heitir Bo Billtén. l’egar dómarinn ber upp spurningu, getur hann valið um svar við licnni frá hverri sem er af borgunum fjórum, og hann getur lika fengið að sjá á tjaldi i „dómarasalnum“ hóp- ana, sem eru önnum kafnir við að finna svör við spurningun- um. Spurningarnar eru flestar nokkurs konar þrautir, sem þarf að leysa með snarræði og fljótri iiugsun, en ]>að er fátt um „prófspurningar." Svo cr sýnt á töflu, hvernig stigin standa. Þættirnir i „Ferlaufasmára“ eiga alls að verða sex. Þeir verða sendir út á liverjum sunnudegi frá 13. april til 18. mai, og hver þáttur er 45 min- útur. f fyrstu fimm þáttunum keppa 25 fulltrúar eins skóla í hverju iandi, í þann siðasta koma svo finnn börn úr hverju liði, sem áður hefur keppt, og taka þátt í úrslitunum. Undirbúningur þessara þátta hcfur staðið yfir i tvö ár. Aldrei áður liefur bein sjón- varpssending farið i einu um öll ]>essi fjögur lönd, svo það rikir að sjálfsögðu nokkur for- vitni um það, hvernig iil tekst. Og vafaiaust munu áhorfendur skipta miiljónum. 195

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.