Æskan

Volume

Æskan - 01.04.1969, Page 22

Æskan - 01.04.1969, Page 22
„Viltu heyra íleiri ævintýri, sem ég rataði í?“ spurði Sindbað verkamanninn Hindbað, sem sat við hlið hans og gerði sér gott af hinum mörgu og Ijúf- fengu réttum, sem fram voru bornir. „Já, svo sannarlega vil ég það,“ mælti Hindbað, „ég mun hlusta með athygli." „Nú var það ætlun mín að lifa í ró og næði í Bagdað, en fljótlega varð ég þó leiður á því að haf- ast ekkert að, svo að það varð úr að ég keypti mér verzlunarvörur og lagði af stað í nýjan leiðangur, með kaupmönnum, sem ég þekkti að ráðdeild og áreiðanleika. — Ekki segir annað af ferðum okkar fyrst í stað en það, að við sigldum til ýmissa landa og höfðum góðan hagnað af verzlun okkar. Eitt sinn var það, er við höfðum tekið land á eyju nokk- urri, sem við vissum ekki hvað hét, því að hana vantaði á landabréf vort, að ég varð viðskila við fé- laga mína. Ég hafði gengið ógætilega inn á stórt skógarsvæði, sem var alþakið ávaxtatrjám, ógæti- lega segi ég, þvi að það kom á daginn, að ég rataði ekki til strandar aftur. Er ég hafði borðað mig mett- an af ávöxtum og sofið smástund, áttaði ég mig á stefnunni til strandar. En þá blasti við mér sú sýn er ég kaus sízt: Skipið mitt var á siglingu brott úti við hafsbrún. Ég barði mér á brjóst og kjökrandi valdi ég sjálfum mér hin hæðilegustu orð fyrir þenn- an klaufaskap minn, að missa svona af skipinu mínu. En ekki tjáði annað en reyna eitthvað til þess að komast til mannabyggða, svo að ég tók Jtað ráð að klifra upp í hátt tré og gat séð þaðan vitt yíir eyj- una. Ekki sá ég nein merki um mannabyggð, en eitt var Jtað, sem vakti sérstaka athygli mína. En Jtað var Önnur sjóferð SINDBAÐS stór, hvítur hnöttur, sem lá á jörðinni við ræturnar á stóru tré. Þetta vakti forvitni mína, svo að ég kleii niður úr trénu og hélt í áttina að hnetti þessum. Er ég kom að honum, sá ég að þetta líktist risa- stóru eggi og duttu mér þá í hug sögurnar, sem há- setarnir á skipinu höfðu sagt mér um fugl einn, er þeir kölluðu Rok. Átti það að vera langstærsti fugl á jarðríki og þarna, sem ég var að ganga í kringum Jjetta risastóra egg, fór ég að trúa þessari sögu. Eggið mun hafa verið ein fimmtíu fet í þvermál. Það leið heldur ekki á löngu þar til fuglinn kom, og svo stórt var vænghaf hans, að það skyggði alveg fyrir sólu. Ég þrýsti mér dauðhræddur að egginu, en það skipti engum togum, að Jressi stóri fugl settist á egg sitt og af tilviljun varð ég bak við annan fót hans. Og hvílíkur fótur! Sver var hann álíka og trjástofn í skógi. Meðan ég lá þarna undir fuglinum datt mér ráð í liug. Ég þóttist vita, að hann mundi fljúga á brott í morgunsárinu og Jrví tók ég hið sterka leður- belti mitt og höfuðbúnað og batt mig fastan við eina af klónum á fæti hans, en Jrær voru satt að segja ekkert smásmíði. Vonaði ég, að fuglinn mundi beina flugi sínu til einhvers annars lands eða eyjar og voru þá alltaf möguléikar á Jjví fyrir mig, að hitta á mannabústaði. Morguninn eftir hóf fuglinn Rok flugið og var brátt ofar skýjum. Flaug hann áfram um stund, en skyndilega tók hann að lækka Jiugið og eftir litla stund vorum við á jörðu niðri í einhverjum mér óþekktum dal. Ég flýtti mér að leysa böndin og um leið sá ég að fuglinn greip stóran höggorm í nef sér og flaug á brott svo hratt, að vart mátti auga á festa. Ég tók nú að kanna þennan dal, sem ég var svo óvænt kominn í og sá fljótlega að hann var umgirtur ókleifum hamrabeltum á alla vegu. Kom \rk aftur að mér lrinn megnasti ótti og harmur og Jjóttist ég nú engu bættari hér en á eynni, sem ég hafði farið frá, nema síður væri. Eftir að ég hafði gengið nokkuð um dal þennan, tók ég eftir því, að tnikið var Jjar af stórum demönt- um og einnig komst ég ekki hjá að sjá, að þarna 198

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.