Æskan - 01.04.1969, Qupperneq 24
Steinunn Karlsdóttir:
I<StíncL l&r til
i^undúnci.
10. KAFLI
Sólin kom npp og gekk til viðar. Dagarnir komu og
fóru svo fljótt, það fannst Stínu að minnsta kosli. Henni
gekk vel í skólanum og var nú íarin að tala ensku við
þær Lísu og Maríu en áður höfðu þær talað íslenzku við
hana. Stundum þegar sólin skein og fuglarnir sungu,
læddust þær út í garð og María hafði gítarinn með sér,
Og þá sungu þær fullum hálsi.
Oft var einhver vegfarandi fyrir utan garðshliðið að
grennslast eftir því, hverjar þær væru sem syngju svona
fallega. Einu sinni kom það meira að segja fyrir, að það
kallaði maður til þeirra og spurði, hvort þær vildu vera
með í söngkeppni, sem átti að hefjast bráðlega. Þær urðu
forviða en afþökkuðu það kurteislega.
Stína átti eftir að vera hálfan mánuð í Englandi og hún
kveið því að fara og hlakkaði til að koma heim. Hún hafði
fengið bréf frá móður sinni og þar stóð meðal annars,
að Stína fengi að ráða því, hvort liún vildi fara sjóleiðis
eða flugleiðis heim. Stína hafði fullan hug á því að fara
sjóleiðis.
Einn daginn fór hún með Maríu út að verzla. Þær
gengu niður St. Louis Street og litu inn í margar verzl-
anir. Stína keypti margt sem hún ætlaði að fara með
heim og eiga sem minjagripi.
Þegar þær komu heim var Stína orðin svo þreytt, að
hún gat varla staðið á fótunum. Þá um kvöldið var
skemmtun í einu af samkomuhúsunum þarna rétt hjá.
Lísa og María vildu óðar og uppvægar fara með Stínu
til að lofa henni að sjá, hvernig Englendingar skemmtu
sér. Það varð úr að þær færu, og þegar klukkuna vantaði
stundarfjórðung í níu lögðu þær af stað. Þegar þær komu
í námunda við samkomuhúsið var mjög glatt á hjalla þar
inni. Þær gengu inn eftir að hafa losað sig við yfirhafn-
irnar, og settust við eitt borðið. Skemmtiatriðin voru að
enda þegar þær komu og sumir karlmennirnir tóku að
rýma til á dansgólfinu. Svo var farið að dansa. Dökkhærð-
ur piltur kom og bauð Stínu upp í dans. Skömmu seinna
sá Stina að þær María og Lísa voru líka komnar út á
dansgólfið. Seinna um kvöldið var svo stöfunarkeppni.
Hún var í því fólgin, að sá sem gal stalað rétt ílest orðin,
sem fram voru lögð, hann varð sigurvegarinn. Stína treysti
sér ekki til að taka þátt í lienni og ekki Lísa heldur, en
hún sá að María bauð sig fram.
Petersen kennari Stínu var jtarna og hann var próf-
dómarinn. Fyrst komu nokkur létt orð, sem flestir gátu
stafað sig fram úr, en svo þyngdist það smátt og smátt og
íleiri féllu úr leik. Loks voru bara þrír keppendur eftir,
en það voru jrau María, Tom Petersens kennara og annar
piltur, sem hét Dick. Stína og Lísa urðu sífellt æstari
eftir því sem tíminn leið. Dick féll brátt úr leik og þá
var nú eftir að vita hvort þeirra myndi vinna, María eða
Tom. Loks var komið að seinasta orðinu. Tom byrjaði,
en komst ekki langt og varð að hætta. Hann reyndi einu
sinni enn en allt fór á sömti leið. Þá var María eftir. Hún
byrjaði hægt og rólega og Jregar hún var búin úrskurðaði
dómarinn: „Rétt“.
„Húrra, hún vann,“ hrópaði Lísa upp yfir sig, og Stína
tók undir. María fékk að verðlaunum lítinn silfurbikar
og tók á móti honum geislandi af gleði. Hún var líka
hyllt mjög. Svo var haldið áfram að dansa til miðnættis.
„Jæja, hvernig fannst þér skemmtunin?" spurði María
á leiðinni heim.
„Þetta var agalega gaman,“ svaraði Stína. „Hvað eru
svona skemmtanir oft hérna?“
„Svona hálfsmánaðarlega," svaraði Lísa, „en við förum
nú ekki oft á þær.“
„Af hverju ekki?“
„Það er nú ekki alltaf svona gaman,“ sagði María,
„Stundum eru svo mikil ólæti, að það er ekki verandi
}tar.“
Svo féll þetta tal niður og stúlkurnar flýttu sér heim
til að komast í bólið.
11. KAFLI
Á morgun skyldi hún fara heim. Stína gal ekki unt
annað hugsað er hún var uppi í herbergi sínu og var
að tæma skúffurnar og láta niður í ferðatöskuna sína.
María leit inn til hennar.
„Get ég hjálpað þér eitthvað?“ spurði hún.
„Nei, Jrakka Jjér fyrir,“ sagði Stina. „Ég er að verða
búin.“
„Mikið öfunda ég þig af Jjví að vera að fara lieim til
íslands, ég hef ekki komið til íslands síðan ég var fimm
ára og mig langar óskaplega til að koma þangað.“
„Það er ekkert gaman að koma að hausti til, en rnikið
væri Jrað gaman ef þú gætir komið næsta sumar,“ sagði
Stína áköf. „Ég er viss um að mamma mundi leyfa Jrér
að vera.“