Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.04.1969, Qupperneq 33

Æskan - 01.04.1969, Qupperneq 33
Tamar og Tóta er einkar skemmti- leg og geðþekk saga, sem börn og unglingar — og einnig fullorðnir — munu hafa yndi af að lesa. Tamar er umkomulaus Araba- drengur, en Tóta er norsk telpa, sem fær alltaf öðru hverju að sigla um öll heimsins höf með foreldrum sín- um, því að pabbi hennar er skip- stjóri á feiknstóru flutningaskipi, Trinítu. í einni þessara ævintýraferða finn- ur Tóta Tamar, þar sem hann er sjúkur í kassaræfli á hafnarbakka nokkrum í Afríku. Og skömmu síðar i'æðst það, að Tamar verður bróðir Tótu, því að foreldrar hennar ákveða, meðal annars fyrir þrábeiðni telp- unnar, að taka drenginn sér í sonar stað. Þessi skemmtilega og hugljúfa saga fjallar um þá atburði og sam- skipti þeirra fóstursystkinanna og foreldranna, svo og ýmissa annarra öæði á skipinu og heima í Noregi. Höfundur bókarinnar, Berit Brænne, er norsk skáldkona, sem hlotið hefur miklar vinsældir, m. a. fyrir barnabækur sínar, og þá ekki sfzt fyrir þriggja bóka samstæðuna um TAMAR og TÓTU og systkini þeirra. Þær bækur hafa komið út i mörgum útgáfum og á ýmsum þjóð- tungum. Má hiklaust vænta þess, að 'slenzk ungmenni taki þeim líka °Pnum örmum. í lausasölu kr. 177,40. Til áskrif- enda ÆSKUNNAR kostar bókin að- eins kr. 125.00. Heilbrigður leikur - rætt um starfsemi Hrannar - Ungtemplarafélagið Hrönn í Reykjavík er áreiðanlega þekktast af þeim félögum, sem mynda landssamband það er nefnist ís- lenzkir ungtemplarar. Á nær ellefu ára starfsferli hefur Hrönn sannað ágæti sitt. En til að kynnast betur starfi hennar á liðnum árum höfum við fengið tvo Hrann- ara til að segja okkur frá þvl markverðasta. Þessir sögumenn eru Grétar Þorsteinsson, sem var formaður félagsins um nokkurra ára skeið, og Torfi Ágústsson, sem hefur verið félagi í Hrönn í fimm ár. Gefum við þeim nú orðið. Fyrstu árin Hrönn var stofnuð 8. apríl 1958 sem ung- mennastúka, en var ári síðar breytt í ung- templarafélag. Starfsemin var fyrst nær eingöngu á vetrum með þeim óheþpilegu afleiðingum, að af um 150 félögum, sem voru með að vorinu þegar vetrarstarfsem- inni lauk, komu aðeins 15—20 aftur til starfa að haustinu. En haustið 1963 komst starfið ekki af stað. Það var ekki fyrr en 4. febrúar 1964 að hægt var að byrja á ný. Þeir, sem þar áttu stærstan hlut að máli voru 34 nýir félagar á aldrinum 18—20 ára. Þessi hópur hafði stundað gömlu dansana í Gúttó og víðar og hafði í huga stofnun ferðaklúbbs. Þá komst einn tryggasti vel- unnari Hrannar, Kristinn Vilhjálmsson, á snoðir um ætlanir hópsins og bauð þeim inngöngu í Hrönn. Sýndi hópurinn strax á fyrsta fundinum hvað I honum bjó: Allir voru áhugasamir og reiðubúnir að gera hvað sem beðið var um og jafnvel meira til, sem er óvenjulegt i félagsstarfi. Þessi hópur hefur verið bjargvættur félagsins til þessa tlma, myndað kjarna, sem svo hefur aukizt við. Fyrirkomulag Það sem eftir var af „gömlu" Hrönn og hópurinn, sem hleypti „nýju blóði“ í starf- semina hefur svo í sameiningu mótað félagið á þann veg, sem nú er orðið. I grundvallaratriðum er ungtemplarafélag sama og stúka, en framkvæmdin er allt önnur. Siðakerfið er ekki notað og funda- formið því allt miklu frjálsara og aðgengi- legra fyrir unglinga nútímans. Eitt af ein- kennum Hrannar er hve margir félagar eru Grétar Torfi i ábyrgðarstöðum, þannig að minna erfiði kemur á hvern félaga auk þess sem fleiri eru gerðir virkir i félagsstarfinu. Lætur nærri að 30—40 séu í stjórn og nefndum, svo sem skemmtinefnd, skálanefnd og klúbbnefndum karla og kvenna, en síðast- talda nefndin sér um svokölluð opin kvöld, sem fyrst voru á Hverfisgötu 116 en nú á Bárugötu 11. Eru þau vikulega allt árið og tengja þannig aðra starfsemi saman. f þróttir Öflugt íþróttalíf hefur lengi verið hjá Hrönn. Er þar æfður körfubolti og íótbolti karla, og handbolti karla og kvenna. Nýlega hef- ur verið stofnuð sérstök íþróttadeild innan félagsins. Er hún orðin aðili að I S í og hefur tekið þátt í þriðju deildar keppninni f knattspyrnu. Hefur iþróttadeildin heimild til að taka inn eigin félaga með sama skilyrði og Hrönn, þ. e. bindindisheiti. Blaðaútgáfa Undir ritstjórn Hildu Torfadóttur hefur Hrönn tvívegis gefið út blað, sem heitir Þerriblaðið. Kom fyrsta blaðið út i maf 1967, en annað í aprfl 1968 og var helgað 10 ára afmæli Hrannar. Var það allstórt, eða 56 blaðsíður. Er von á áframhaldi þess- arar útgáfustarfsemi með vorinu. Tryggingar Vegna meiðsla á Iþróttaæfingum var farið að athuga um tryggingu á félögum Hrann- ar. Árangurinn varð sá, að nú eru allir Hrannarar (hóp-) tryggðir hjá Ábyrgð og er kostnaðurinn innifalinn í félagsgjaldinu. Eru félagarnir tryggðir í ferðalögum, á íþrótta- 209

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.