Æskan

Volume

Æskan - 01.04.1969, Page 34

Æskan - 01.04.1969, Page 34
Nýkjörin stjórn Hrannar kom saman til fyrsta fundar síns 11. febrúar s.l., og þá tók Karl Jeppesen þessa mynd. f efri röð eru (frá vinstri): Vilhjálmur J. Guðbjartsson, form. klúbbnefndar karla; Kristján Þorsteinsson, fræðsiustjóri; Haraldur Guðbjartsson, form. skemmtinefndar; Hósa Gústafsdóttir, form. klúbbnefndar kvenna; Sveinn H. Skúlason, form. féiagsins; Aðalheiður Jónsdóttir, varaform.; Guðmundur Einarsson, gjaldkeri; Sig- rún Helgadóttir, varagjaldk.; Helgi Árnason, meðstjórnandi. í neðri röðinni eru: Sigriður Hlíðar, meðstjórn.; Torfi Ágústsson, trúnaðarmaður; Magnea Magnúsdóttir, ritari. Á mynd- ina vantar Gyðu Halldórsdóttur, vararit., og Stefán Þór Kjartansson, form. ferðanefndar. æfingum eða í starfi hjá félaginu. Hefur Ábyrgð, tryggingafélag bindindismanna, verið mjög samningslipurt og veitt góða þjónustu. Stórverkefni Yfirleitt hefur alltaf verið eitthvert stórverk- efni hjá Hrönn á hverju ári siðan starfsem- in var endurvakin. Þannig var fjölmenn Færeyjaferð 1965, undirbúningur að og þátttaka í Norræna ungtemplaramótinu í Reykjavík 1966, þar sem m. a. söng bland- aður kór frá Hrönn. Stór hópur fór á lands- mót ÍUT á Siglufirði 1967. Á árinu 1968 bar hæst hina miklu afmælishátíð félagsins og þátttöku í Norræna ungtemplaramótinu í Svíþjóð. Hrönn hefur aðstoðað f U T við stofnun nýrra félaga úti á landi og við undirbúning og framkvæmd bindindismóta að Jaðri, í Húsafellsskógi og f Galtalækjar- skógi. í Húsafelli hafði Hrönn pylsusölu, og af henni og ýmsu öðru hefur smám saman myndast sjóður, sem nú er ákveðið að nota í byggingu skála. Er það stærsta verkefnið í nánustu framtíð. Er málið kom- ið það langt, að samningar standa nú yfir um visst land, og loforð hefur fengist írá Jaðarsnefnd um stórt lán, vaxtalaust til tíu ára, og má segja að þessi aðstoð hafi gert þennan draum framkvæmanlegan. Einnig hefur félaginu verið gefið hús til niðurrifs í Kópavogi. Starfsemin 1968 var mjög blómleg. Margar skemmtanir voru haldnar, að ógleymdri afmælishátíðinni; farnar voru 10 ferðir með um 300 þátttak- endum; meðalmæting á opnu kvöldunum var 50 (mest 76) og komu þangað að meðaltali þrír nýir í hvert sinn. í félaginu eru nú um 150 á aldrinum 15— 25 ára, þar af gengu inn á árinu 25. Nýir félagar eru ekki teknir í félagið íyrr en þeir hafa verið með um nokkurt skeið, og f Ijós hefur komið að það er ekki „agita- tion“ gömlu félaganna, heldur ágæti félags- starfsins, sem hefur fengið menn tii að gerast félagar Hrannar, og er það vel. Lokaorð Sameiginlegt átak hefur gert félagið traust í sessi. Mikið af ungu og efnilegu fólki er í félaginu og alltaf bætist við. Erum við því bjartsýnir á framtið ungtemplarafélags- ins Hrannar, félags, sem byggir á heilbrigð- um leik heilbrigðra unglinga — án áfengis. — Jr. Gaukur keppir að marki Enn geta áskrifendur ÆSKUNNAR eignast hinar snjöllu drengjabækur Hannesar J. Magnússonar, fyrrver- andi skólastjóra á Akureyri, sem ÆSKAN hefur gefið út. Gaukur verSur hetja kostar í lausasölu kr. 163.95. Til áskrifenda ÆSKUNNAR kostar bókin aðeins kr. 112.00. Ævintýri Óttars kostar í iausasölu kr. 198.85. Til áskrifenda ÆSKUNN- AR kostar bókin aðeins kr. 140.00. Nýjasta bók Hannesar J. Magn- ússonar er Gaukur keppir aS marki. Þeirri bók er skipti í eftirtaida kafla: 1. Sýnd veiði, en ekki gefin, 2. Gaukur æfir skíðaíþrótt, 3. Gaukur leitar frétta um fortíðina, 4. Bindind- isfélagið „Dögun", 5. Skíðakeppnin, 6. Leyndarmál Gauks, 7. Það er svo margt, sem myrkrið veit, 8. Gaukur fer til Englands, 9. Lokaðir inni, 10. Á fjarlægum slóðum, 11. Skólinn tekur aftur til starfa, 12. Óvænt slys, 13. Gaukur verður fyrir óvæntu happi, 14. Fyrir rétti, 15. Hróar hverfur, 16. Gaukur sýnir höfðingsskap, 17. í afmælisveizlu, 18. Gaukur kemst í blöðin, 19. Dauðir rísa upp, 20. Sögu- lok. Allir þeir mörgu, sem eiga fyrri bókina um ævintýri Gauks, þurfa að eignast þess nýju bók. Hún er spenn- andi frá upphafi til enda. Bókin er 152 blaðsíður að stærð og kostar í lausasölu kr. 198,90, til áskrifenda ÆSKUNNAR aðeins kr. 140,00. 210

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.