Æskan

Volume

Æskan - 01.04.1969, Page 40

Æskan - 01.04.1969, Page 40
S. H. Þorstemsson: Frímerki. DIJEX 1968. Á s.l. ári fór fram á Frí- kirkjuvegi 11 frímerkjasýning- in „DIJEX-19B8". AS henni stóð Landssamband íslenzkra frí- merkjasafnara í samvinnu við vestur-þýzka unglinga, sem sendu sýningarefni í 25 ramma hingað. Þá tók auk þess póst- stjórn Sameinuðu þjóðanna þátt í þessari sýningu með safni því, sem áður hafði verið á ferð i 19 Evrópulöndum. NORDEN 1969 Þann 22. febrúar voru svo gefin út ný Norðuriandafrí- merki og koniu þau út sama dag á öllum Norðurlöndunum. Sýning með sama nafni Var haldin þann dag i Stokkliólmi, þar voru sýnd öll Norðurlanda- frímerki, ásamt þeim gömlu. Þá var á þessari sýningu alger nýjung í samvinnu milli Norð- urlandaþjóðanna, sem sé að stimpla mátti öll Norðurlanda- frimerkin á þessari sýningu með sama stimpli. Þó varð, ef senda átti bréf frá Sviþjóð, að setja á það burðargjald, sem nægði i sænskum frímerkjum. Þetta mun aldrei fyrr hafa vcrið gert og Verður Vonandi til þess, að viðtækara samstarf tekst með Norðurlöndunum i sambandi við sameiginlegar sýningar, svo að i framtíðinni megi jafnvel stimpla svona sameiginlegar útgáfur Iijá öll- um Norðurlandanna. Norræna húsið og Klúbbur Skandinavíu-safnara gengust lika fyrir litilli sýningu hér á landi, nánar tiltekið i Norræna húsinu i Reykjavik. Þar voru sýnd gömlu og nýju Norður- landafrimerkin, teikning Viggos Bangs að fyrra norræna fri- merkinu, og tillögur Stefáns •• - JUVENTDS. 1969 :,V , >•*••.»*••»«*•»••»*»•••*•»»••»»••»»*»•»* 1ére EXPOSITION PHILATELIOUE INTERNATIONALE OE LA JEUNESSE FtP „JUVENTUS - 69“ Efnt var á sínum tíma til alþjóðlegrar samkeppni um frímerki fyrir fyrstu stóru alþjóðlegu unglingasýninguna, „JUVENTUS- 69“ í Luxembourg. Aðeins unglingar fengu að taka þátt í þessari samkeppni og var þátttakan geysigóð, eins og sjá má af því, að 633 tillögur bárust frá 19 þjóðlöndum. Dómnefnd var fjölmenn, en komst samt að einróma niður- stöðu um að verðlauna bæri 3 unglinga og fylgir hér með mynd af tillögum þeirra. Þeir, sem hlutu verðlaun voru: Betty Verdrengh, frá Belglu, Andre Chavaillaz, frá Sviss og Johannes-Wolfgang Neugebauer frá Austurríki. Það skal tekið fram, að „JUVENTUS-69" er haldin undir vernd F.I.P. og hafa þegar verið tilkynnt 2 söfn á þá sýningu frá islandi. Búlgörsku Norðurlandafrímerkin. — Hér er svo mynd af 2. útgáfu Norðurlandamerkja frá Búlgaríu. Það eru skipin 5 og búlgarska rósin, sem prýða þessi merki. Sigurðssonar, af norrænni sam- vinnu á frímerkjum. Stutt frimerkjakynning var cnnfremur á sýningunni. Kynning á Selfossi. Þá hafði Félag frimerkjasafn- ara á Selfossi kynningu á frí- merkjasöfnun á s.l. ári, og voru allir sammála um, að hún hefði tckizt mjög vel. Væri vel, að slik kynning yrði endurtekin, ekki bara þar, lieldur og hjá fleiri frimerkja- félögum i landinu. Nú eru að verða ]>að margir klúbbar starf- andi viða um landið, að þeir eiga liægt með að halda slíkar kynningar. Þá eru viða liópar, sem vel geta sett upp smákynningar, sem gætu þá orðið vísir að fé- lagsstofnun, viða um landið. Klúbburinn. Nú liefur frímerkjaklúbhur Æskunnar verið kallaður tvisv- ar saman. Það var fyrst með útvarpsauglýsingu á DIJEX-68, og svo á kynninguna i febrúar. Þátttaka var sæmileg í báð- um tilfellum, en hefði þó kannski mátt vera betri, aðal- lega úr bænum. Það var þó gaman að fá heimsókn alla leið norðan úr Þingeyjarsýslum á DIJEX. Þann 2. apríl s.l. var haldinn fundur í samvinnu við Æsku- Iýðsráð, og vcrður sagt frá honum í næsta blaði. MELINA MERCOURI Hin heimsfræga griska kvik- myndaleikkona Melina Mer- couri, sem hýr nú landflótta í Ameríku, er komin af merkri grískri ætt. Faðir hennar Var þingmaður gríska þjóðþingsins og varð livað eftir annað ráð- herra áður cn herforingja- stjórnin tók völdin i Grikk- landi. Afi hennar var borgar- stjóri í höfuðhorginni Aþenu í meira en 30 ár. Það var afi hcnnar, sem gaf henni nafnið Melina — en það er dregið af gríska orðinu „Meli,“ sem þýð- ir hunang. Sjálfur hafði liann misst dóttur sína og unni Me- linu öllu heitar. Hann vildi allt fyrir hana gera og það cina, sem hann krafðist að launum var, að liún skyldi aldrei gerast leikkona. En löngun Melinu til þess að leika varð þó öllum loforðum yfirsterkari. Þegar hún var 17 ára, giftist hún rik- um Grikkja og lét þá sti'ax inn- rita sig i lcikskóla. Fjölskylda hennar var sannfærð um, að námið reyndist henni of erfitt, aginn of strangur. En Melina úlskrifaðist úr skólanum og lék i fyrsta sinn í Aþenu i leikriti cftir ungan rithöfund, Alexis Salomos. Þetta varð uppliaf að glæsilegum leikfcrli Melinu Mereouri. Hún liefur siðustu ár leikið bæði í griskum, frönsk- um og amerískum leikhúsuin og kvikmyndum. 216

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.