Æskan - 01.05.1969, Side 36
Nokkur bréf hafa borizt þessum þætti
með fyrirspurnum um hjúkrunarnám. — Það
skal strax tekið fram, að þetta nám stendur
oþið bæði fyrir konur og karla. — Reyndin
hefur þó orðið sú, að það eru að langmestu
leyti ungar stúlkur, sem gerast nemendur
í Hjúkrunarskóla íslands.
Þessi skóli er í nýlegu húsi að Eiríks-
Hjúkrunarnemar 1968.
götu 34 nálægt Landspítalanum í Reykjavík.
Heimavist er í skólanum, 90 herbergi, en
aðsókn er mikil og munu stúlkur utan af
landi sitja íyrir heimavistarherbergjunum.
Húsbúnaður, fæði, þvottur og rúmfatnað-
ur, sem skólinn leggur nemendum til ásamt
húsnæðinu, er greitt eftir mati skattstjóra.
Skólinn leggur nemendum til hjúkrunarföt.
Lögboðnar tryggingar, þ. e. iðgjöld til
sjúkrasamlags, almannatrygginga og slysa-
trygginga, eru greidd af skólanum eða því
sjúkrahúsi, sem nemandinn dvelur I við
nám sitt hverju sinni.
Umsækjendur um nám í Hjúkrunarskóla
íslands skulu vera fullra 18 ára, er þeir
hefja námið. Undirbúningsmenntun skal
vera gagnfræðapróf eða landspróf miðskóla
og lögð sérstök áherzla á, að einkunnir í
íslenzku, stærðfræði og dönsku séu a. m.
k. 6,0. Umsækjendur, sem hlotið hafa frek-
ari menntun ganga fyrir að öðru jöfnu. —
Lögð er áherzla á góða framkomu, reglu-
semi og gott siðferði. Umsækjandi skal
sjálfur fylla út umsóknareyðublöð skólans
af nákvæmni og samvizkusemi. Ýmis vott-
orð, þ. á m. læknisvottorð, þurfa að fylgja
með umsókn, einnig Ijósmynd og meðmæli
skólastjóra og vinnuveitenda. — Um allt
þetta gefur skólinn nánari upplýsingar, en
skólastjóri er frk. Þorbjörg Jónsdóttir. —
Heimilisfang Hjúkrunarskólans er: Eiríks-
gata 34, Reykjavík.
Hjúkrunarkona
Némstíminn er 3 ár, eða rúmlega það,
samfellt nám vetur og sumar.
Hjúkrunarnámið er bæði bóklegt og verk-
legt. Bóklega námið fer aðallega fram á
námskeiðum, sem eru 4 alls, en nokkur
hluti þess fer fram jafnhliða verklega nám-
inu. Verklega námið fer fram á hinum ýmsu
deildum Landspítalans og öðrum sjúkrahús-
um og stofnunum, sem skólinn ákveður.
Það er allmiklu lengra en hið bóklega.
Þessar námsgreinar eru kenndar í skól-
anum.
1. Hjúkrunarfræði.
2. Heilsufræði og heilsuvernd.
3. Líffæra- og lífeðlisfræði.
4. Lyflæknisfræði.
5. Lyfjafræði.
6. Handlæknisfræði.
7. Sálarfræði.
8. Geðsjúkdómafræði.
9. Sjúkdóma- og sýklafræði.
10. Augnsjúkdómafræði.
11. Barnasjúkdómafræði.
12. Eðlis- og efnafræði.
13. Félagsfræði.
14. Spítalastjórn.
15. Háls- nef- og eyrnasjúkdómafræði.
16. Hjálp í viðlögum.
17. Hjúkrunarsaga.
•272