Æskan - 01.03.1970, Síða 3
Sameinuðu þjóðirnar 25 ára
Til þess að gefa til kynna, að gæfuríkari
framtíð kunni að vera framundan, er börnum
um allan heim veitt aðstoð daglega.
Barnahjálparsjóður Sameinuðu þjóðanna,
eða UNICEF, sér um heilsurækt og velferð
barnanna. Tugir milljóna barna hafa notið
verndar gegn sjúkdómum, og milljónum barna
hefur verið forðað frá að verða hungurmorða.
UNICEF nær til rúmlega tveggja milljóna
telpna og drengja tii viðbótar i hverjum mán-
uði. UNICEF fær stuðning í þessu mikilvæga
starfi frá samtökum SÞ og frá fjölda aðildar-
landa. UNICEF á engar kröfur á venjulega
fjárhagsáætlun SÞ. Sjóðurinn styðst við frjáls
framlög frá ríkisstjórnum og einstaklingum
og aflar fjár með sölu UNICEF jólakorta.
Á komandi hausti, nánar
tiltekiS 24. október, munu
Sameinuðu þjóðirnar minn-
ast 25 ára afmælis síns
með miklum hátíðahöldum,
sem fram fara rétt fyrir
þingsetningu samtakanna í
New York, og má búast við
mörgum þjóðhöfðingjum
við þau hátíðahöld. Hér á
landi er nú þegar hafinn
undirbúningur hjá Félagi
Sameinuðuu þjóðanna að
minnast afmælisins, og er
formaður afmælisnefndar-
innar Emil Jónsson, utan-
ríkisráðherra. Formaður
Félags Sameinuðu þjóð-
anna á íslandi er Gunnar
Schram, deildarstjóri í ut-
anríkisráðuneytinu.
í næstu blöðum ÆSKUNN-
AR munu birtast stuttar
frásagnir af starfi samtak-
anna, og birtist sú fyrsta í
þessum flokki hér á næstu
síðu.
135