Æskan

Årgang

Æskan - 01.07.1970, Side 19

Æskan - 01.07.1970, Side 19
ana og sjá um að senda þá til kon- ungsins. Hann varð að fylgjast með regntímum og sjá um að skurðir og áveitur fyrir kornvinnsluna væru hreinsaðar reglulega. Hann varð einn- ig að geta gefið upplýsingar urn, hvort vænta mætti góðrar eða lélegrar upp- skeru. Um allt þetta þurfti að skrifa skýrslur til konungsins. Ef veðrátta var slærn og uppskerubrestur fyrir- sjáanlegur, varð landstjórinn að skrifa birgðastjóra næstu stórborgar og fá sent frá honum korn, til þess að fólk- ið liði ekki hungur. Þegar uppskeran var góð, varð að greiða jætta korn til baka. Það hefði verið mjög erfitt fyrir menn að undirrita nafn sitt á leir- töflurnar, svo að konungurinn, land- stjórar og flestir assyrískir heldri menn áttu innsigli, sem þeir notuðu sem undirskrift. Móttakandi bréfsins jækkti innsiglið og vissi þá sam- stundis frá hverjum bréfið var. Innsigli voru notuð í stað undir- skriftar á öll mikilvæg skjöl, sem voru rist svo nákvæmlega í leirtöflurnar, að ekki væri hægt að breyta neinu í jteirn, án jtess að Jaað sæist. Ashurbanipal konungur átti mesta bóka- safn veraldar í leirtöflum. Innsigli var rist á smávalB, sem rennt var yfir leirtöfluna. Ef t.d. santningur var gerður um sölu á landi, var j)að allt ritað með mikilli nákvæmni og kaupandi og seljandi ásamt vottum settu innsigli sitt undir samninginn. Síðan tók skrifarinn samninginn, setti hann í leirumslag og á Jtað voru ritaðir sömu skilmálar. Það var hægt að breyta því, sem stóð á umslaginu, en það var ekki hægt að breyta innihaldinu, án þess ið brjóta fyrst umslagið. Bækur varð einnig að rita á leir- töflur, eins og bréfin, svo Jtær voru Konunglegur skrifari ristir bréf konungsins á leirtöflu. Bréf og umslög eru látin I hita- ofn til herzlu. fyrirferðarmiklar og erfitt að safna tniklu af þeim. Einn konunganna, As- hurbanipal að nafni, var mikill lær- dómsmaður. Hann hafði safnað rúm- !ega tuttugu Jmsundum slíkrabókaog átti mesta bókasafn í heimi. í safni hans voru bækur um trúmál, vísindi, læknisíræði, landbúnað og fjölda annarra efna, meðal annars einnig nokkur skáldrit. 355

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.