Æskan

Volume

Æskan - 01.07.1970, Page 25

Æskan - 01.07.1970, Page 25
Hún er indæl. Nú kemur Stína að. Hún tekur skó Skellu úr hendi Melkers og réttir Malín hann. ,,Sjáðu,“ segir hún dálítið flóttaleg. „Skórinn hennar er ekki týndur. Þú getur geymt hann handa næsta barninu þinu.“ En nú virðist Malín verða reið og hún segir: ,,Þið eruð laglegar barnfóstrur! Ég má varla líta undan, þá látið þið barnið milt hugsa ,um sig sjálft. Til allrar hamingju er ég svo glöð, af því að Pétur er á batavegi og kemur heim fljót- lega, annars hefði ég gefið ykkur öllum vel utan undir.“ ,,Þú segist vera glöð, en . . .“ segir Melker undrandi, ,,en hvað um Skellu?" „Skella er hérna í skipinu," segir Malín. Síðan snýr hún sér við og kallar: ,,Palli, komdu nú! Og hafðu Skellu með þér!“ Enduríundirnir verða ólýsanlegir, og Melker fær vitneskju um, að Palli hefur synt út í flekann til Skellu og gætt hennar. ,,Þú ert duglegur drengur, Palli,“ segir Melker og lyftir Palla upp í fang sér. Hann faðmar að sér Palla og yrðlinginn, báða i einu. Vestermann kemur til þeirra líka og virðir yrðlinginn fyrir sér og klappar honum á kollinn. ,,En hvað hann er fallegur," segir hann. Og síðan lofar hann Palla að hann skuli aldrei skjóta yrð- lingana. Og Palli segir honum í þakklætisskyni, hvar riffillinn hans er falinn. Skella dáist einnig að yrðlingnum, en andartaki síðar er hún horíin aftur. Melker er að gefast upp á henni. Hvar er trölla- barnið nú? Það er útilokað að hemja hana. En hún finnst aftur. Enn hefur hún komizt inn í reykingakofann og er sótsvört um allan líkamann. Þrátt fyrir það lyftir Malín dótiur sinni upp í fang sér og kyssir svartar kinnar hennar. ,,Nú förum við heim,“ segir Melker. ,,Ég ætla að koma þér á óvart með dálítið, Malín. Ég hef átt annrikt í fjarveru þinni. Þú þekkir ekki eldhúsið aftur, það máttu bóka!“ Maiín fer heim með föður sínum, og þau fara inn í eldhúsið. Og þar ganga þau fram á verk Skellu og sjá, hvernig hún hefur skemmt sér við að skreyta veggi og skápa. En varla er hægt að segja, að verk hennar séu aðdáunarverð. Melker snýr sér til vinstri og hægri og alveg í hring og trúir varla eigin augum sínum. „Hér hljóta tröllin að hafa verið að verki!“ baular hann. ,,Já, einmitt," segir Stjna og bendir á Skeilu. ,,Ég er alltaf að segja það. Hún er alvöru tröllabarn. En hún er indæl . . .“ ENDIR. 361

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.