Æskan

Volume

Æskan - 01.07.1970, Page 30

Æskan - 01.07.1970, Page 30
heiminum eru fjögur alheims-kvenskátaheimili. Þau eru: Olavehouse í London, Our Chalet í Sviss, Our Cabafia í Mexíkó og San Gam á Indlandi. Síðastliðið sumar var tveimur stúlkum frá íslandi boðið að dvelj- ast á Our Cabana í þrjár vikur ásamt tveimur fulltrúum frá: Eng- landi, Hollandi, Frakklandi, italíu, Grikklandi, Chile, Venezúela, Barbados, Jamaica, Mexíkó, Kína (Formósu) og einnig tuttugu og fjórum stúlkum frá Bandaríkjunum. Stúlkur, sem boðið er að dveljast á þessum skátaheimilum, eru styrktar af sjóði sem íyrsti kvenskátahöfðingi Bandaríkjanna stofnaði og er nefndur eftir henni og heitir Juliette Low sjóður. Við vorum svo heppnar að hreppa hnossið í þetta sinn. Auð- vitað eru viss skilyrði sett til þess að fara í svona ferð, skilyrði um aldur og skátareynslu og málakunnáttu. Mikið þurfti að undirbúa. Við fengum alls konar plögg send frá alþjóðaskrifstofu kvenskáta í New York. Síðan var hafizt Hópurinn. Mexíkó 1969. 366

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.