Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1970, Síða 31

Æskan - 01.07.1970, Síða 31
Kennsla í föndri. samlegur, alþakinn gróðri, bæði ávöxtum og blómum. Skordýra- lífið var á hápunkti, því regntímaþilið stóð yfir. Þið megið þó ekki halda, að það hafi alltaf rignt, nei, síður en svo, því sólin skein allan liðlangan daginn, en með myrkrinu komu þrumur og eld- ingar og rigning. En við, sem vorum öllum veðrum vanar frá okk- ar kalda fróni, urðum fyrst eins og hræddar mýs, er við kynnt- umst reiði himinsins. Kvöld eitt vorum við einar við vinnu í föndurhúsinu, þegar ósköpin dundu yfir. Þetta var það ægilegasta veður, sem kom meðan við vorum þarna. Hávaðinn var svo mik- ill, að allar rúður titruðu. Ekki bætti það úr skák, að Ijósin fóru, og við fundum hvorki eldspýtur né kerti. Við urðum svo hræddar, að það lá við- að við skriðum undir borð. Að endingu hertum við okkur upp og hlupum niður í hús, og var rigningin þá svo mikil, að ekki var þurr þráður á okkur. Dagskráin var mjög fjölbreytt. Á hverjum morgni og hverju kvöldi var fánaathöfn. Við þvoðum upp og lögðum á borð. Einnig þurftum við að hafa allt í röð og reglu í húsunum. Margir um- ræðufundir voru haldnir. T. d. var talað um vandamál æskunnar, stúdentaóeirðir, og hvað hver einstakur gæti gert til þess að hjálpa bágstöddum. Margt þekkt fólk kom á þessa fundi og hélt fyrirlestra. Eftir á var svo skipt i umræðuhópa og skipzt á skoð- unum og komið með tillögur. Þrjú verkefni í þágu bágstaddra leystum við af hendi. Fyrst heimsóttum við heimili fyrir vandræða- stúlkur. Vorum við með þeim heilan dag við leik og söng, öllum til ánægju. Hin verkefnin unnum við í fátækrahverfum, við að handa við að útbúa minjagripi, og tók það anzi langan tíma, því allt í allt gerðum við 60 minjagripi úr gæru og hrauni. Bók eina mikla, sem lýsir íslandi og íslenzku skátastarfi í myndum og máli, útbjuggum við einnig sem gjöf til Our Cabana. Svo rann upp hin mikla stund. Aðfaranótt 6. júlí 1969 hófst hin ævintýralega ferð. í átta og hálfa klukkustund dvöldum við I há- loítunum. Vegna hristings vélarinnar og eftirvæntingar okkar kom okkur ekki dúr á auga. Þegar vélin var lent á Kennedyflugvellin- um f New York, fórum við inn í flugstöðina til þess að svipast um eftir þeim, er skyldu taka á móti okkur, en þar var þá enginn. Urðum við því að bjarga okkur á eigin spýtur og tókum strætis- vagn þangað sem vélin til Mexíkó átti að hefja sig til flugs. En þar var okkur þá sagt, að til Mexíkó kæmumst við ekki án ferða- mannapassa. Tókum við það þá til bragðs að hringja á alþjóða- skrifstofu kvenskáta. Eftir fimm tíma bið vorum við sóttar og farið með okkur á hótel og þá loks fengum við að hvílast. i ívo daga dvöldum við í New York, skoðuðum borgina og fengum ferðamannapassana. Ferðin frá New York til Mexíkóborgar gekk vel. Fyrstu tvo dagana í Mexíkó dvöldumst við hjá fjölskyldu og kynntumst smávegis Mexíkóborg og lifnaðarháttum Mexíkana. Síðan buðu mexíkönsku kvenskátarnir öllum hópnum í ferðalag, og var þetta I fyrsta skipti, sem hópurinn kom saman. í þessari ferð skoðuðum við hina fornu pýramída Aztekanna. Á þriðja degi var svo haldið til Our Cabana. Our Cabana er 5 ekrur lands í útjaðri smáþorpsins Cuernavaca, sem er 47 mílur fyrir sunnan Mexíkóborg. Á þessari landspildu, sem skátarnir eiga, eru sex litil hús í mexíkönskum stíl og það sjöunda var í smíðum. f þremur húsum bjuggum við stelpurnar, 16 i hverju húsi, í einu bjó forstöðukonan og foringjarnir, sem voru fjórir, eitt var föndurhús og I því síðasta var eldhús og stór salur, og þar var borðað og haldnar kvöldvökur. Fyrir framan það hús var uppáhaldsstaður allra, sundlaugin. Garðurinn var dá- Kennsla í föndri í einu fátækrahverfinu. 367

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.