Æskan - 01.07.1970, Síða 44
ÍSLENZKA
flugsagan
—-------- ..
Ljósm.: N. N.
Nr. 22 TF-ISV
NORSEMAN
Skrásett hér 30. nóvember 1945 sem TF-ISV, eign Flugfélags
íslands hf. Hún var keypt af bandaríska flughernum. Áður en af-
hending fór fram, voru hjólin tekin undan flugvélinni og undir
hana sett flotholt. Hún fékk nafnið Dynfaxi.
Hún var smíðuð 1943 hjá Noorduyn Aviation, Kanada. Fram-
leiðslunr. var 127. Raðnúmer í hernum: 43-5136.
Flugvélin var notuð hér til farþega- og póstflugs. Snemma í
október 1947 var henni breytt í landflugvél, en um mitt sumar
1948 er hún aftur orðin að sjóflugvél. Lofthaefisskírteini hennar
rann út 3. júlí 1949, og var það ekki endurnýjað. Hún var rifin
1953; formlega tekin af skrá i nóvember 1961.
UC-64A. NORSEMAN: Hreyflar: Einn 600 ha. Pratt & Whitney
R-3020 Wasp. Vænghaf: 15.70 m. Lengd: 8.86 m. Hæð: 4.19 m.
Vængflötur: 30.19 m>. Farþegafjöldi: 7. Áhöfn: 1. Tómaþyngd:
2.188 (2.014) kg. Hámarksflugtaksþyngd: 3.090 kg. Arðfarmur: 89
(484) kg. Farflughraði: 225 km/t. Hámarkshraði: 250 km/t. Flug-
drægi: 745 km. Hámarksflughæð: 5.200 m. 1. flug: 1935. — Töl-
urnar í svigum eiga við flugvélina sem landflugvél.
Nr. 23 TF-RVC
STINSON
Skrásett hér 8. desember 1945 sem TF-RVC, eign Loftleiða hf.
Húri var keypt af bandaríska hernum á íslandi.
Hún var smíðuð 1941 hjá Vultee Aircraft, Nashville, Tennessee,
U.S.A. Raðnúmer: 41-18964.
Flugvélin var notuð hér til farþega-, póst- og kennsluflugs.
25. sept. 1946 hlekktist flugvélinni á í lendingu í Vestmanna-
eyjum, svo að hún var ónothæf eftir.
17. sept. 1948 selja Loftleiðir þeim Stefáni IVIagnússyni, Hall-
dóri Sigurjónssyni, Haraldi Gislasyni, Braga Jónssyni, Einari
Árnasyni og Jóni Júlíussyni flugvélina (skr. 7. 10. 48), og þá
missir hún einkennisstafina -RVC. Afhent 7. okt. 1948. Hún flaug
þó ekki eftir þetta.
Ljósm.: N. N.
VULTEE 0-49A STINSON: Hreyflar: Einn 295 ha. Lycoming R-
680-9. Vænghaf: 15.52 m. Lengd: 10.43 m. Hæð: 3.13 m. Farþega-
fjöldi: 1 (síðar 2). Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 1.156 kg. Hámarksflug-
taksþyngd: 1.524 kg. Arðfarmur: 20 kg. Farflughraði: 198 km/t.
Flugdrægi: 560 km. Flughæð: 6.100 m. 1. flug: 1940.
Nr. 24 TF-RVA
GRUMMAN GOOSE
Skrásett hér 10. janúar 1946 sem TF-RVA, eign Loftleiða hf.
Keypt i Bandaríkjunum í nóv. 1945.
Ljósm.: N. N.
Arngrímur Sigurðsson og
Skúli Jón Sigurðarson rita um
íslenzkar ílugvélar
380