Æskan - 01.07.1970, Qupperneq 46
I
Sumarstari
Æskulýðsráðs
Reykjavlkur
Æskulýðsráð mun efna til fjölþættrar
starfsemi i sumar með ungti fólki, og
beinist starfsemi þessi einkum að ýmiss
konar útiveru, stuttum ferðum út úr borg-
inni, í Saltvík og til silungsveiði i nær-
liggjandi vötnum, siglingum og róðrum í
Fossvogi, búvinnunámskeiði og skemmt-
unum og félagsstarfi i Tónabæ.
Siglingaklúbburinn Siglunes i Nauthóls-
vík mun verða opinn mánud., miðvikud.
og fimmtudaga kl. 7—10.30 e. li. og laug-
ardaga kl. 2—7. Auk þess verða sérstakir
tímar fyrir yngstu félagana og byrjendur.
Lágmarksaldur klúbbfélaga er 11 ár, og
er árgjald kr. 150,00. Á þriðjudögum kl.
6—10 verður félögum leiðbeint með smíði
báta.
I Saltvík á Kjalarnesi verður starfsemin
í mörgum þáttum, og eru þessir helztir:
Haldnar verða 4—5 helgarskemmtanir
á vegum félagssamtaka og Æskulýðsráðs
fyrir ungt fólk.
Æskulýðsfélögum í Reykjavík verður
gefinn kostur á að halda sýningar eða mót,
iþróttamenn munu æfa þar og keppa, unn-
ið verður við fegrun staðarins, garðrækt,
skógrækt, efnt til náttúruskoðunar og
gönguferða o. m. fl.
Umsjónarmaður með starfi i Saltvik hef-
ur verið ráðinn Þórhallur Runólfsson,
íþróttakennari.
Á timabilinu 9. júní til 1. ágúst vcrður
börnum og unglingum 9—14 ára vcitt tæki-
færi til ódýrra ferða og dagsdvalar i Salt-
vík. Verður ferðum þessum hagað þannig,
að 9—11 ára bctrn verða tekin upp í lióp-
ferðabifreiðir á nokluum stöðum í borg-
inni á mánudögum og miðvikudögum um
kl. 9 f. h. og ekið heim aftur að kvöldi.
Ferðir fyrir 12—14 ára verða á sama hátt
þriðjudaga og fimmtudaga. í Saltvík munu
hópar þessir vinna að fegrun staðarins
og ræktun, fara i náttúruskoðunarferðir,
taka þátt í ýmsum leikjum o. fl. Þátttak-
endur munu liafa með sér nesti fyrir dag-
inn. Innritunargjaid vegna þátttöku í
þessu starfi verður kr. 50,00, en fargjald
kr. 25,00 liverju sinni.
Stangveiðiklúbbur unglinga jnun starfa
líkt og undanfarin sumur. Veiðiferðir
verða á þriðjudögum, föstudögum og um
helgar, en veiðiferðir verða að sjálfsögðu
háðar veðri og aðstæðum á hverjum tima.
Lágmarksaldur jjátttakenda í veiðiferðum
er 11 ár, en áherzla lögð á aidursflokkana
11—14 ára.
EKKI GOTT AÐ VITA
Maður nokkur kom á fleygiferð eftir
þjóðveginum á mótorhjóli. Hann fór miklu
hraðar en lög leyfðu, og allt í einu ók
hann fram á mann og hund. Maðurinn
stökk til hliðar, en hundurinn varð undir
mótorhjólinu og drapst. Ekillinn snaraðist
af hjólinu, stakk seðlabunka I hönd manns-
ins og ók því næst leiðar sinnar, eins og
hann ætti lífið að leysa.
Göngumaðurinn horfði undrandi á eftir
honum og því næst á seðlahrúguna í hendi
sinni og sagði við sjálfan sig:
— Gaman þætfi mér að vita, hver hef-
ur átt þennan hund.
Ársgjald i Stangveiðiklúbbnum er kr.
50,00, cn gjald fyrir veiðiferðir miðast við
kostnað (25—75 kr.).
Tónabær mun einnig starfa í sumar líkt
og s.l. sumar, en þá var opið hús fyrir
unglinga 3—4 sinnum í viku, og stærri
skemmtanir og samkomur á milli.
Að Fríkirkjuvegi 11 starfa leiklistar-
klúbbur og tveir skemmti- og ferðaklúbb-
ar. Vinnur lciklistarklúbburinn að gerð
kvikmyndar og undirbúningi að kabarett-
sýningu, einnig að sýningum fyrir vist-
menn á sjúkrahúsum o. f 1.
Skemmti- og ferðaklúbbarnir efna til
ferða um landið og ýmiss konar skemmt-
ana.
Tekið verður á móti innlendum og er-
lendum hópum æskufólks, og í undirbún-
ingi er gagnkvæm heimsókn til Skotlands
og Þýzkalands með ungu fólki og ieið-
beinendum. Nokkur æskulýðsfélög fá einn-
ig aðstöðu til æfinga og fundarhalda.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar i
ski-ifstofu Æskulýðsráðs að Frikii-kjuvegi
11, en hún er opin alla virka daga ki. 2—8
e. h., sími 15937.
4. janúar 1947 hvolfdi flugvélinni á Sandskeiði, er hún lenti
með hjólin I gryfju, og skemmdist hún nokkuð.
2. desember 1947 kaupir Helgi Filippusson flugvélina af vél-
flugdeild Svifflugfélagsins.
Síðan hefur hún lofthæfisskírteini frá því í júli 1949 til júlí
1950, síðan frá því í sept. 1950 til 17. des. sama ár, en síðan
ekki aftur fyrr en í júní 1953 til maíloka 1954.
23. júní 1953 gerist svo það, að flugvélinni hvolfir, er henni var
lent í fjörunni hjá Búðum á Snæfellsnesi, sem var ákvörðunar-
staður flugmannsins. Hvorki hann né farþega hans sakaði, en flug-
vélin skemmdist talsvert. Þá hafði henni verið flogið um 1125
flugtíma alls. Þessi flugvél er enn til og kann að verða gerð flug-
hæf.
Núverandi eigandi (frá 1968) er Matthías Matthíasson.
BOEING PT-17 STEARMAN: Hreyflar: Einn 220 ha. Continental
R-670-5. Vænghaf: 9.80 m. Lengd: 7.63 m. Hæð: 2.79 m. Væng-
fiötur: 27.63 nru. Farþegafjöldi: 1. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 913 kg.
Hámarksflugtaksþyngd: 1.300 kg. Arðfarmur: 173 kg. Farflughraði:
170 km/t. Hámarkshraði: 300 km/t. Flugdrægi: 800 km. Hámarks-
ílughæð: 6.000 m. 1. flug: 1934. Upphaflega ekki teiknuð hjá Boe-
ing.
LEIÐRÉTTING
I janúarblaðinu var sagt, að TF-SUX hefði flogið til Ólafsfjarðar
í janúar 1939. Þarna átti að standa Ólafsvíkur. Flugmaður var
Agnar Kofoed-Hansen, og fór hann ferðina 5. janúar. Sjúklingur-
inn, sem hann sótti, var Eliníus Jónsson kaupfélagsstjóri I Ólafs-
vík.
Þá skal þess getið, að það var Örn Ó. Johnson, sem fór fyrstu
póstflugin I TF-SUX til ýmissa staða á Suðausturlandi í marz
1939, en síðan tók Björn Eiríksson við. Örn lenti t. d. fyrstur
manna hjá Fagurhólsmýri 23. marz 1939
382