Æskan - 01.07.1970, Page 56
„Trölli“ spyr:
Hver vill eignast gítar?
eða plötuspilara?
Vilt þú það?
Þá skal ég
kenna þér gott ráð:
Góður byrjanda-gítar kostar ca kr. 2.200,00 til 2.300,00. Góður plötu-
spilari kostar ca kr. 5.000,00 til 6.000,00. Byrjaðu á því að safna
fyrstu 200 krónunum. Til þess eru ýmsar leiðir. Þér áskotnast öðru
hverju eitthvað litilræði fyrir smá viðvik, eins og t.d. sendiferð, eða
þú selur blöð. Kannski safnar þú hagalögðum. Öllu máli skiptir, að
þú eyðir ekki þessum aurum jafnótt og þú aflar þeirra. Haltu
þeim saman, þar til þú hefur fyrstu 200 krónurnar. Farðu með þessa
peninga i Útvegsbanka íslands. Leggðu peningana inn á sparisjóðs
bók, t.d. eins árs bók. Slík bók aflar þér 9% vaxta af innstæðunni
á ári. Þegar þú ert búinn að leggja inn á bókina, biður þú um að fá
mig með þér heim, þér til aðstoðar, við framhald söfnunarinnar. Nú
setur þú þér ákveðið söfnunartakmark, t.d. eitt hundrað krónur á mán-
uði, eða tvö hundruð, jafnvel þrjú hundruð, eftir efnum og ástæðum.
Galdurinn er sá, að hvenær sem þér áskotnast einhverjir aurar,
t.d. á afmælisdaginn, skellir þú þeim strax í kollinn á mér og ég varð-
veiti þá, þar til ekki kemst meira í mig í einu. Þá förum við aftur saman
í Útvegsbankann og biðjum afgreiðslufólkið þar að tæma mig. Fólkið
gerir það og færir peningaupphæðina inn í sparisjóðsbókina þína.
Siðan röltum við heim aftur og hefjum leikinn að nýju. Þetta er allur
galdurinn.
Hve lengi verðum við nú að þessu?
Með vöxtum og vaxtavöxtum, sem starfsfólkið í bankanum reiknar
þér til tekna á sparisjóðsreikninginn þinn, tekur þetta eftirfarandi
tíma:
Ef þú leggur fyrir:
kr. 100,00 á mán. kr. 200,00 á mán. kr. 300,00 á mán.
Að eignast fyrir gítar: 21 mánuð 11 mánuði 8 mánuði
Að eignast fyrir plötuspilara: 4 ár 2 ár 18 mánuði
Byrjaðu því strax að safna fyrstu 200 krónunum, svo að þú getir
fengið mig, þér að kostnaðarlausu, heim með þér. Eftir það vinnum
við sameiginlega að framhaldinu. Leggir þú inn á eins árs bók,
færðu 9% ársvexti, eins og ég sagði áðan, en þú mátt þá heldur ekki
taka út úr bókinni, innan eins árs. Þeim mun meira er i henni, þegar
til þess kemur.
Hittumst sem fyrst í Útvegsbankanum,
þinn einlægur,
,,TRÖLLI“, Útvegsbanka íslands.