Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1971, Síða 60

Æskan - 01.10.1971, Síða 60
Myndin sýnir kort af Svíþjóð og lönd og innhöf, sem að hennl llggja. 1. Svíþjóð er stærst allra Norðurlanda, 450.000 km-, og liggur austan megln á Skandinavíuskaga. Landið er álíka langt og Noregur, en breiðara og miklu láglendara. Ströndin liggur að Helsingja- botni, Eystrasalti, Eyrarsundi og Katte- gat, en löndin, sem að því liggja, eru Noregur og Finnland. Um helmingur Svlþjóðar er skógi vax- Inn. Meginhluti þessa mikla skógar er barrskógur (fura og grenl). Syðst eru laufskógar, einkum beykitré. Barrtrén eru græn allt árið. Þau þola kaldara loftslag og þrlfast i ófrjórri jarðvegl en flest lauftré. Hálendið er mest nyrzt í landinu og ■kallast Lappland ásamt nyrztu héruðum Flnnlands. Þar eru fjöll og firnindi, lítið sem ekkert gróin, og víðáttumikil helða- lönd. Miklll vatnaklasi er á breiðu beltl yfir þvera Mið-Svlþjóð. Stærst eru Ván- ern, Váttern og Málaren. Vánern er lang- stærst, um það bil 70 sinnum stærra en Þingvallavatn. Úthafsloftslag er á vesturströndinni, en annars staðar meginlandsloftslag. í Norður-Svíþjóð er veturinn svo kaldur, að allar hafnir við Helslngjabotn eru isi lagðar marga mánuði á árl. Stærstu eyjarnar eru Gotland og Ey- land, báðar I Eystrasalti. 2. Sviþjóð er konungsríkl með þing- bundna stjórn. Þingið heitir Rikisdagur. Ibúar eru um 8 milljónlr. Stærsta borg- in er Stokkhólmur, sem hefur meira en eina milljón Ibúa, og er hún jafnframt höfuðborg landslns. Stokkhólmur er enn fremur mesta iðnaðarborgin og stendur við afrennsli Málarens og að nokkru leyti á hólmum í vatninu. Málaren er eitt fegursta stöðuvatn i Svíþjóð. I vatn- inu eru mörg hundruð skógi vaxnar eyj- ar og hólmar. Þar eiga margir Stokk- hólmsbúar sumarbústaði og njóta f sum- arleyfinu sveitasælu í næsta nágrenni stórborgarlnnar. Borgin sjálf þykir eln sú fegursta í allrl Evrópu. Margar glæsl- legar byggingar prýða borgina. Meðal þeirra merkustu má t. d. nefna Riddara- hólms-kirkjuna, þar sem margir hinna sænsku konunga eru grafnir, Þinghúsið, Konunglegu óperuna, Þjóðminjasafnlð og Konunglegu bókhlöðuna. Myndln er frá höfninni og borgarhlut- anum gamla. 3. i Svíþjóð eru þjóðbúningar af marg- víslegum gerðum, elns og tiðkast með- al ýmissa þjóða. Unga fólkið hér á myndinni er klætt þeirri gerð, sem segja má að sé einna mest einkennandi fyrir sænska þjóðbúninga. Þjóðdansar eru mikið iðkaðir í Svi- þjóð og þá einkum meðal unga fólksins. Standa Svíar I fremstu röð Evrópuþjóða á því sviðl. 4. Aðalatvinnuvegir Sviþjóðar eru land- búnaður, skógarhögg, iðnaður og náma- gröftur. Svíar framleiða nægar landbún- aðarvörur til eigin þarfa (kjöt, mjólk, kornvörur, garðávexti, grænmeti). Skánn heitir frjósamasta og bezt ræktaða hérað landsins. Þar eru mörg bú og stór og búskapurinn rekinn með nýtizku sniði. Á ökrunum má sjá vinnuvélar af stærstu og fullkomnustu gerðum. B e Úr hlnum mlklu skógum landsins kem- ur meira en þrlðjungur allra útflutnings- verðmæta þjóðarinnar. Ekkert land í Evrópu flytur út jafnmikið af timbri, trjá- mauki og pappír, að ógleymdum hinum heimskunnu sænsku eldspýtum. Ár eru margar í landinu og fleyta þær á hverju vori meira en hundrað milljónum trjá- bola til strandar. Bæir og borgir hafa því risið við marga árósana í sambandl við sögunarmyllurnar og trjáiðnaðinn. Námagröftur er mjög mikill, einkum járngrýti. Langt norður í auðnum Lapp- lands eru heil fjöll úr járngrýti, sem vart á sinn lika annars staðar. Úr 100 kg af járngrýti fást 65 kg af hrelnu járni, sem síðan er hægt að breyta í stál. í Mið-Svíþjóð eru einnig mlkilvægar járn- námur. En þar er málmurinn djúpt I jörðu, en ekki ofan jarðar eins og ! Lapplandi. Málmiðnaður er feikimikill og margs konar vörur framlelddar, allt frá rakvélarblöðum og kæliskápum tll bíla og skipa. Svíar bræða þó aðeins lítinn hluta af járngrýtinu sjálfir. Mikið af þvl er selt óunnið úr landi. Sænskt stál og sænskar iðnaðarvörur eru þekktar um víða veröld. Svíar tala sænsku, sem er mjög lík norsku og dönsku. Menntun þjóðarinnar er mjög góð og lífskjör þjóðarinnar betri en ( flestum öðrum löndum heims. 58

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.