Æskan

Volume

Æskan - 01.12.1973, Page 7

Æskan - 01.12.1973, Page 7
 Altari kirkjunnar { Getsemane. Þetta er ekki Islenzkt úðaregn, heldur steypiregn, og þrum- ur drynja og skrugguljósin leiftra um hálfan himininn. Þa3 er aðeins stutt stund milli reiðarslaganna, og þrumuhljóðið verður ærandi. Borgin Amman stendur mjög hátt I fjalllendinu. Loks sjáum við Ijósin á flugvellinum í borginni. Ljósin eru tjörublys, sem standa f löngum röðum. Vélin lendlr mjúklega, við þrífum farangur okkar og stígum út úr vélinni. Þegar við höfum fast land undir fótum, lítum við yfir borgina, sem er höfuðborg Jórdaníu. Amman er að miklu leyti ný borg með nýtízku háhýsum úr steinsteypu næst Getsemanekirkja. flugvellinum, en lengra til suðurs sést móta fyrir gömlum, vinalegum, hvítum kalksteinshúsum. Það er hálft tungl, en gefur þægilega rauðleita birtu, og mér virðist mánasigðin helmingi stærri en ég á að venjast heima. Mér varð að orði við einn flugvallarþjónlnn í Amman, að mér þætti leitt að geta ekki skoðað borgina. „Það er ekki neinn skaði, húsin eru flest ný og eiga enga sögu. Þú ert á leið til Jerúsalem, þar e'ru merkileg hús, sem eiga sér sögu.“ Ég sá, að þetta var hárrétt. Þetta er sjónarmið Araba um þjóðir og ættir. ísland á þúsund ára sögu, jú, þar getur verið menning og hefðir. Tvö til þrjú hundruð ára saga þjóðar getur naumast verið merkileg að mati Araba, enda þótt þjóðin sé rlk og drekki mikið af coca-cola. Arabar hafa tilhnelglngu til að líta á nýríka menn eins og segir i gömlum íslenzkum máls- hætti: Margur verður af aurum api. Við stígum upp í bílana og ökum af stað til Jerúsalem. Öll er leiðin niður f mótl, og ekið er á um og yfir 100 kílómetra hraða. Vegurinn er góður og sjálfiýsandi stikur meðfram öllum vegarbeygjum þarna í fjöllunum. Við komum seint til Jerúsalem, og strax er okkur hefur verið vísað til herbergja í hótelinu, förum við að sofa. Ég fer snemma á fætur og út, áður en nokkur vaknar á hótelinu. Veðrið er fagurt og mikil birta yfir borginnl. Loftið er svalt, það hefur rignt um nóttina. Borgin stendur f 800 Gullna hliðið á gamla múrnum i Jerúsalem. Gamla borgin. 5

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.