Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1973, Blaðsíða 39

Æskan - 01.12.1973, Blaðsíða 39
I I ' 1 I \ naMMlW fyrlr höfuð sér, að minnsta kosti var kona hans með glóðar- auga um kvöldið. Þvl undi hún illa og hótaði að kæra hann fyrir lögreglustjóra. Daginn eftir, þegar Marúf sat við skósmíðar sínar, komu allt i einu tveir lögregluþjónar og tóku hann fastan og fluttu f dómhúsið. Þar var þá stödd Fatima kona hans, og bar hún aðra höndina f fatla og hafði borið rauðan lit á umbúðirnar, svo sem blóð væri. Dómari sá, sem þarna átti að dæma, þekkti þau hjón og vlldi af góðsemi sinni gera gott úr þessu öllu. Hann mælti við Marúf: „Hérna færðu einn dínar. Kauptu fyrlr hann hunangsköku handa konu þinni, og reynið svo að lifa sam- an f friði.“ En Fatima var verri en svo f skapi, að hún gætl unað þessum málalokum. Hún kærði mann sinn fyrir öðrum dómara, og fékk hann þá svo þungan dóm, að vinir hans sögðu honum, að hann mundi ef til vill lenda f fangelsi. Þvi vildi hann ekki una, lokaði því smiðju sinni og stakk á sig þeim fáu dínörum, sem hann hafði unnið sér inn þennan dag, og sfðan flýði hann út úr borginni. Um kvöldið kom hann að gömlum kastalarústum og leitaði þar náttstaðar, þvf að komið var ausandi regn. — I raunum sfnum þarna um nóttina tók hann að biðjast fyrir: „Ó mikli Allah! Sendu mér nú einhvern, sem getur flutt mig langt á brott héðan, og þá til þess staðar, sem hin vonda kona mín getur ekki fundið mig." I sama bili kom rifa f einn múrvegginn og stór andi kom f Ijós. Hann mælti: „Hver ert þú, sem ónáðar mig hér fyrstur manna í tvö hundruð ár? Seg mér ósk þfna, og mun ég uppfylla hana, en aðelns eina.“ „Flyt mig héðan til betra fólks á betri stað,“ svaraði Marúf að bragði. Andinn hafði nú engin umsvif, en tók mannlnn á bak sér og flaug með hann alla nóttina. Við sólarupprás setti and- Inn Marúf niður á fjallstind einn. „Við rætur þessa fjalls muntu finna gott fólk, og þarna getur kona þín naumast fundið þig.“ Síðan hvarf andinn á brott. Marúf gekk niður fjallshlíðina, og brátt kom hann að vlnalegum bæ girtum lágum múrum. Margt fólk gekk þar um strætin, og þegar Marúf kom inn f bæinn, vakti klæðn- aður hans skjótt athygll, þvf að hann var allfrábrugðinn klæðaburði annarra. Sumir brostu jafnvel að honum. Þá bar þar að ríkmannlegan kaupmann, sem spurðl, L. __________________________________________________________ hvað hér væri um að vera, og bauð hann Marúf að koma heim með sér. Þegar þeir tóku svo tal saman, kom það upp úr kafinu, að kaupmaður þessi var ættaður frá Kaíró og hét Alí, og við nánari kynni kom það upp úr dúrnum, að þeir Marúf og hann höfðu sézt áður fyrir mörgum árum. Alí sagði Marúf, að þessi borg héti Alchula, og væru íbúar i hennar gott fólk, en dálítið auðtrúa, allir tækju það trúan- legt, sem þeir heyrðu sagt. „Þegar ég kom ókunnur hingað og sagði þeim, að ég væri ríkur kaupmaður, vildu þelr allt fyrir mig gera og lánuðu mér vörur og peninga, sem ég nú hef endurgreitt," sagði Alí. „Nú skulum við sjá, hvernig þér gengur." Morguninn eftir fóru þeir báðir saman á kaupstefnu bæj- arins, og er ekki að orðlengja það, að þegar kaupmenn bæjarins heyrðu, að Marúf hinn nýkomni væri kaupmaður og allvel efnaður, stóðu honum allar dyr opnar, og margir vildu lána honum vörur og peninga, þar til hann fengi vör- ur þær og fé, sem væru á leiðinni. Hann ætti von á stórri úlfaldalest eftir skamman tíma. En nú leið tíminn og engin lest kom til Marúfs, sem ekki var von, þar sem hún var aðeins hugarfóstur þeirra félaga, Alfs og Marúfs. Tóku nú kaupmenn þeir, sem lánin höfðu veitt, að ókyrrast, og kærðu þeir Marúf loks fyrir sjálfum soldáninum. Soldán dæmdi þó þannig i málinu, að kaup- menn skyldu enn bíða og sjá til, hvort úlfaldalest Marúfs kæmi ekki senn. Hann vildi þó athuga þennan ókunna mann betur og kallaði hann þvf á sinn fund. Sýndi soldán honum eina af stærstu og dýrmætustu perlum sfnum og spurði hann, hvort hann hefði áður séð nokkra perlu svo stóra. Marúf lék sinn ieik áfram og mælti: „Svona litla perlu köllum við ekki dýrmæta f mfnu heimalandi, en þegar lestln mín kemur, skal ég sýna yður, náðugi soldán, perlur, sem vert er um að tala. Þær eru allar töluvert stærri en þessi, sem þér eruð með hér.“ Nú fór soldán að hugsa sltt ráð. Hann áttl nefnilega gjaf- vaxta dóttur og þurfti því að fara að huga að góðum tengda- syni. Það reið þó baggamuninn, að ráðherra hans stakk upp á Marúf sem hugsanlegum tengdasyni soldáns, og varð það úr, að soldán sendi hann með boð um þetta til Marúfs. Marúf, sem eitt slnn hafði séð dóttur soldánsins, var hrifinn af þessum tilvonandl ráðahag, en svaraði því þó til, að hann vildi ekki halda brúðkaupið fyrr en lestin hans kæmi, svo að hann gæti gefið konuefninu sinu góða morg- 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.