Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1973, Blaðsíða 17

Æskan - 01.12.1973, Blaðsíða 17
Fjársjóður sólguðsins BARNASAGA eftir REIMER LANGE PT unglskin var og kyrrt útl, enda ágætls veður tyrir lestarferð. Skömmu fyrir dögun dró ský fyrir ména og logaheitur vindur eyðimerkurinnar vældi í austur- héruðum Egyptalands. Hann hvein yfir litla musteri sól- guðsins, Amon Ra, sem var i jaðrl eyðimerkurinnar, svo að sandkornin hrúguðust upp við tignarlegar súlurnar með myndletrinu og nær huldu steinljónin við innganglnn. Tveir menn stóðu í skjóli þessara steinljóna með manns- andlitin. „í þessu veðri getum við rænt fjársjóðnum," hvísl- aði annar þeirra. „Sandfokið hylur spor okkar.“ „Hefjumst þá handa, Abis,“ svaraði hinn. „Ef menn vissu nú, að musterispresturinn, Ataurus, væri hér með eyðimerkurræningjunum!“ „Uss!“ hvæsti presturinn. „Fjársjóðurinn er fólginn innst I musterinu. Þar eru engir verðir, því að alllr halda, að Amon gæti sjálfur elgna sinna.“ Hann brosti fyrlrlitlega, og musterisrænlngjarnir tveir fóru inn. Á sömu stundu kom asni, sem bar konu og kornabarn á baki, að musterinu. Maður, sem gekk við hlið asnans, reyndi að sjá, hvert þau væru komin, þrátt fyrir sandstorm- inn. „Við erum komin að egypzku musteri, María," sagði hann hrlfinn. „Við erum í Egyptalandl." „Guði sé lof og dýrð,“ svaraði konan. „Nú getur Heródes ekki gert okkur mein. En við erum svo örþreytt. Getum við ekki leitað skjóls hérna, Jósef?" Maðurinn kinkaði kolli. „Að vísu er þetta musteri heiðins guðs,“ sagði hann, „en við bíðum i forsalnum eftir að storminum sloti." Hann teymdi asnann inn f forsalinn. Konan steig af bakl og fór að annast barnið, en skyndilega opnuðust dyrnar. Ræningjarnir komu hlaðnir gersemum. Ataurus sá strax ókunna fólkið. „Þessi vitni að verkum okkar sleppa ekki llfandi héðanl“ sagði hann við Abis. Hlns vegar sagði hann hátt vlð fólklð um lelð og hann varpaði frá sér sekkjunum með musterlsfjársjóðnum: „Hver eruð þið?“ „Fátæklr ferðalangar frá Gyðlngalandl," svaraðl Jósef. ..Vlð flýðum hingað, þvi að Heródes konungur vlldl drepa barnið, þar sem undarleg tákn urðu vlð fæðlngu hans." „Komið þlð innar i musterið," sagði presturlnn slelkju- lega. „Innst innl er betra skjól fyrir vlndi og veðrurn." Dyrnar opnuðust, og tveir ræningjar birtust í gættinni. Jósef og Maria fóru með barnlð Inn ( musterissalinn, en þar var risastytta af guðinum Amon. „Nú skaltu drepa þau!“ hrópaði Ataurus til meðsektar- manns síns. „Það kemst aldrei upp um ránið, ef þetta ókunna fólk finnst látið hér.“ Abis dró sverð sitt úr slíðrum ... Á sömu stundu heyrðist brak og brestir. Stytta goðsins féll ofan á þá Ataurus og Abis, og þeir lágu ómeiddir undir steinunum, en máttu slg hvergi hræra. Enginn steinn féll á Jósef, Maríu og barnið. „Þeir eru lllmenni, sem ætluðu að myrða okkur,“ sagði María. „En þeim tókst það ekki, því að barnið hjálpaði okk- ur. Goðið féll um leið og hann birtist." „Þetta barn, sem við skírðum Jesú,“ sagði Jósef, „er að sönnu sonur guðs. Villidýrin snertu okkur ekki [ eyði- mörkinni fyrir hans skuld, og nú hefur hann sigrað bæði ræningja og gömul goð.“ Hann virti barnið iitla fyrir sér með lotningu. „Jesús er sonur guðs,“ sagði María rólega. Hún hlustaði um stund. „Nú linnir storminum," sagði hún. „Við skulum fara héðan. Barnið mun vernda okkur og þeir fá maklega refsingu ...“ „Þú ræður," svaraði Jósef auðmjúkur, og hann fór með sina helgu fjölskyldu — Jólaþamið og Maríu — til Egypta- lands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.