Æskan - 01.12.1973, Blaðsíða 79
p—■——
^ dagar eru til jóla, og Maggi hefur
aðeins selt 5 myndir og á þess
vegna enga peninga fyrir jólamatnum.
En ég gleymdi að segja ykkur, hver
Maggi er. Hann er gamli málarinn í
gula húsinu hérna uppi á hæðinni. Hann
málar landslagsmyndir og selur. Nú
ætlar Maggi í bæinn með myndir til að
selja. í þessari ferð ætlar hann einnig
að hjálpa til að skreyta bæinn fyrir jóla-
skemmtunina á aðfangadagskvöldið.
Maggi tók skíðin og fór af stað. Þegar
hann kom í bæinn, var honum vel fagn-
að. Strax var farið að kaupa myndir hjá
Magga gamla, en hann hafði ekki búizt
við svona mikilli sölu og hafði þess
vegna bara haft með sér 10 myndir.
Nú var farið að teikna upp skreyting-
una. Hún átti aff vera á hringtorginu.
Það fór að rökkva, svo að ákveðið var
að Maggi kæmi bara daginn fyrir að-
fangadagskvöld.
Maggi lagði af stað heim. Hann var
dauðþreyttur og sofnaði um leið og
hann kom heim.
Maggi gamli
Þegar Maggi vaknaði þann 23. des.,
fór hann strax að undirbúa ferðina í bæ-
inn. Það var mjög hvasst og haglél.
Hann klæddi sig vel, tók svo skíðin og
lagði af stað. Þegar hann fór niður einn
stallinn, etakkst skíðið í snjóinn, og
Maggi datt illa. Og þegar hann ætlaði
að standa upp, gat hann það ekki. Þarna
lá hann hreyfingarlaus í sólarhring. En
þá komu menn og fóru með hann með-
vitundarlausan í bæinn.
Þegar Maggi kom til sjálfs sín, fékk
hann að vita, að hann væri brotinn um
öklann og handleggurinn væri líka brot-
inn.
Maggi fékk að fara heim um kvöldið.
Daginn eftir lá hann í rúminu. Klukkan
2 heyrði hann sungin fyrir utan alls
kyns jólalög. Svo var barið á dyr. Hann
kallar kom inn. Þá komu margir krakkar
úr bænum inn. Þeir færðu honum gjafir.
Maggi hafði aldrei fengið eins fallegar
og jafnmargar gjafir, hann fór næstum
að gráta af gleði. Frá öllum krökkunum
fékk hann kettling. En svo fékk hann
svo margt, sem þau bjuggu til. Svo gaf
Maggi börnunum að drekka, og svo
sungu þau með Magga og dönsuðu
kringum jólatréð. Síðan fóru allir heim.
En daginn eftir kom kaupmaðurinn með
mat handa Magga, og því hélt hann
áfram þar til Maggi var orðinn góður.
Vilborg Gréta Jónsdóttir.
Já, það er gott súkkulaðiö frá Móna.
— Við fylgjumst með
bragðskyni fólks og reynum
að gera því til hæfis.
SÆLGÆTISGERÐIN
MÓNA
Súkkulaðikexið frá Móna
er bæði gott og nærandi. —
Tilvalinn millimatur. — I vinnu, eða á ferðalagi.
77