Æskan - 01.12.1973, Blaðsíða 66
1. Að reisa flösku
Þessi þraut er fólgin ( þvf
einu að reisa með öðrum fæti
flösku, sem liggur á hliðinni.
m
2. Ómögulegt!
Biðjið þann, sem taká vill
þátt í þessum leik, að standa
upp við vegginn f stofunni og
snúa baki að veggnum þannig,
að hælar hans snerti gólflistann.
Leggið síðan vasaklút fyrir fram-
an ,,tærnar“ á skóm hans og
segið honum að taka klútinn
upp án þess að hreyfa sig úr
sporunum. Það getur hann ekki.
En munið að láta vasaklútinn
vera alveg við skóna hans, þvf
að annars getur verið, að hon-
um takist að leysa vandann.
3. Að fella stokkinn
Tveir taka þátt f þessum leik.
Þeir leggja hvor um sig tóman
eldspýtustokk á handarbakið á
sér. Síðan standa þeir hvor and-
spænis öðrum, og verður bilið
milli þeirra að vera hæfilegt til
þess, að þeir rétt nái að snerta
stokkana hvor hjá öðrum. Sig-
ur næst með því að fella stokk
andstæðingsins f gólfið, en
gæta verður þess að missa ekki
niður sinn eigin stokk. — Þetta
er miklu erfiðara en það virðist
f fljótu bragði. — Það má
kreppa hnefann og rétta úr
fingrunum eða gera hvað ann-
að, sem er líklegt til árangurs.
Ef annar getur velt stokki and-
stæðingsins niður og missir
sinn um leið, þá vinnur and-
stæðingurinn.
4. Þekkið fólk
með sleifum
Það bregzt varla, að bæði
þátttakendur í þessum leik og
áhorfendurhlæi dátt og skemmti
sér. Myndin sýnir, hvernig þetta
gengur til. Stúlkan, sem er með
bindið fyrir augunum, hefur
tvær trésieifar í höndum, og
með því að þreifa með þeim
fyrir sér á hún að geta sagt,
hver maðurinn er. Heimilt ér
þátttakendum að skipta um sæti
til að rugla blindingjann f rím-
inu. Sá, sem þekkist, skal sfð-
an leysa þrautina næst.
5. Páfinn
Þátttakendur raða sér upp
fyrir aftan þann dreng (eða
stúlku), sem kjörinn hefur ver-
ið til að vera páfinn fyrstur.
Hann á síðan að loka augun-
um og telja upphátt hægt og
rólega upp að 25. Á meðan
læðast öll börnin f felur. Páfinn
á siðan að finna þau og elta
þar til hann getur fest hendur á
þeim, og þá á hann að segja
„Bann“, og er þar með buinn
að banna þeim að hreyfa sig.
Sá, sem er „bannaður" fyrstur,
má samt leysa hin úr banninu.
Þegar páfanum hefur tekizt að
„banna“ einhvern þrisvar sinn-
um, verður sá hinn sami að yf-
irgefa leikvanginn og er þar
með úr leik. Gengur svo þar til
allir eru úr leik og sá, sem
fyrstur yfirgaf völlinn, verður svo
páfinn í næsta leik.
6. Aflraun
Eins og allir vita, eru eldspýt-
ur ekki sterkar, og allt of oft
vilja þær brotna við það, að
kveikt er á þeim. En sé eld-
spýta sett milli fingranna, eins
og myndin sýnir, er hún óbrjót-
anleg. Þú getur glaður og ör-
uggur veðjað við hvern sem
er um það, að hann geti ekki
brotið sundur eldspýtu á þenn-
an hátt. Allra sízt getur hann
brotið hana, haldi hann henni
eins og á myndinni og með
beinum handlegg í axlarhæð.
með munninum
Maðurinn á myndinni heldur,
eins og þið sjáið, hægri hendl
64