Æskan - 01.12.1973, Blaðsíða 63
3 dl volg mjólk (37—40°C)
1/2 tsk. salt
1 tsk. sykur
50 g brætt smjörlíki
500 g hveiti
1. Hrærið gerið út í volgri mjólkinni, þar
til það er uþpleyst.
2. Sigtið saman hveiti, salt og sykur í
hrærivélarskál.
3. Bætið germjólkinni og smjörlíki út í.
4. Látið vélina hræra deigið í 1—2 min.
5. Hreinsið barma skálarinnar, stráið
litlu hveiti yfir deigið og látið bíða í
40 mín., ef notað er þurrger, en að-
eins í 15 mín., ef notað er pressuger.
6. Hnoðið deigið og mótið í brauð. Klipp-
ið í brauðið eins og myndin sýnir og
penslið með eggjablöndu eða mjólk.
Stráið birki yfir ef vill.
7. Látið brauðið lyfta sér f 20 min.
8. Bakið við 200° hita á plötu neðarlega
í ofni í 30—40 mín.
9. Takið brauðið út úr ofninum og látið
það kólna á kökugrind, svo að botn-
inn verði ekki blautur.
KANILLENGJA
Sama deig og í brauðið sem búið er að
lyfta sér I 40 mín.
100 g smjörlíkl
75 g sykur
1 tsk. kanill
1. Hnoðið deigið upp með örlitlu hveiti
og skiptið I 3 hluta.
2. Breiðið út hvern hluta fyrir sig f af-
langa köku.
3. Smyrjið smjörlíkinu á allar kökurnar
og stráið kanilsykrl yfir.
4. Rúllið kökunum upp í lengjur.
5. Fléttið allar lengjurnar saman I eina
lengju, eins og myndin sýnir.
6. Látið fléttinginn lyfta sér á plötunni
I 20—30 min.
7. Penslið með eggjablöndu og stráið
sykri yfir.
8. Bakað I 20—25 min. við 225°C hita.
Ath.: Ef ykkur þykir kakan of litið sæt,
má hræra saman 2 msk. af flórsykri og
nokkrum dropum af vatni og pensla yflr
kökuna rétt áður en hún er borin fram.
Pressuger er erfitt að fá keypt, en þurr-
ger fæst nú i pökkum i matvörubúðum. 1
pk. er mátulegt ( 500 g af hveiti. Ef gerið
fæst ekki i næsta kaupfélagi eða hjá næsta
kaupmanni, ættuð þið að benda viðkom-
andi á að panta það hjá Innflytjanda.
SÚKKULAÐIKAKA
11/2 bolll hveiti
1 bolll sykur
1/2 bolli smjörlíki (100 g)
1 bolli súrmjólk
1/2 tsk. lyftiduft
1/2 tsk. natrón
1/2 tsk. salt
3 msk. kakó
2 egg
1.
2.
3.
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
Hrærið öllu saman í hrærivél í 2—3
min.
Bakið í hringmóti í 40 min. við 200°C.
Berið þeyttan rjóma með kökunni.
SÚPUBOLLUR
125 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 msk. sykur
50 g smjörlíki
y2 egg
1/4 di mjólk
y blandað saman
Þurrefnin eru sigtuð á borð.
Smjörliklð mulið i.
Vætt í með egg og mjólk.
Hnoðað.
Deiginu skipt f 8—10 hiuta.
Hverjum hluta rúllað i mjóa lengju,
sem vafin er I hnút.
Smurt að ofan með eggi eða mjólk.
Bakað I miðjum ofni við 225°C I 15—
20 mín.
61