Æskan

Volume

Æskan - 01.12.1973, Page 9

Æskan - 01.12.1973, Page 9
Aðeins tveir geta tekið þátt ( þessum leik, en það er bót [ máli, að áhorfend- ur láta sér varla leiðast meðan þeir horfa á. Settu stóla með undirskál á f sinn hvorn enda á stofunni, og láttu svo fimm steinvölur undir hvorn stól. Þátttakend- ur staðnæmast svo hvor við sinn stól með skeið I hendinni. Þegar skipað er: i.Af stað“, taka þeir steinvölu ( skeið- ina og hlaupa með hana að stólnum I hinum endanum og leggja hana á und- irskálina og hlaupa svo aftur eftir næsta steini og svo koll af kolli. — Sá, sem verður fyrstur með alla steinana, vinnur, en mundu, að það er óleyfilegt að koma við steinvölurnar með hendinni, aðeins má nota skeiðina. Leikurinn er skemmti- legur fyrir þá, sem horfa á, því að leik- endurnir eru alltaf að rekast á og missa þá steinana og verða að ná þeim upp aftur með skeiðinni. LEIKUR FYRIR TVO Kletturinn, þar sem lík Jesú var lagt. Utan I Móríahæð stendur enn hinn forni Grátmúr Gyð- inga, og hefur hann verið grafinn upp af fornfræðingum. Þar í námunda hefur verið grafið upp gólf I höll Heródesar frá dögum Krists. Þarna I Jerúsalem á hver staður sína sögu. Eln frægasta gatd borgarinnar og jafnframt mikil verzlunargata er Vegur þjáninganna eða Via dolorosa; eftir þeirri götu gekk Jesú og bar sinn kross á leið til Golgata, en Golgata þýðir hausa- skeljastaður. Margar kirkjur frá mörgum þjóðum hafa verið reistar Kristi til dýrðar. Kirkjur þessar eru frá ýmsum öldum, og hafa þær verið reistar eins fagrar og mikilfenglegar og menn framast gátu. I mörgum þessara kirkna logar fjöldi kertaljósa á mörgum ölturum daga og nætur, og þar eru menn á ferli allan sólarhringinn, og þar fer fram stöðug guðsdýrkun I einhverri mynd. Til Jerúsalem streymir ótölulegur fjöldi ferðamanna, þegar hægt er fyrlr ófriði, og má þar heyra flestar heims- tungur talaðar. Við nokkrir íslendingar göngum um þessi stræti og hlustum á sögu borgarinnar, og vlð heyrum dyn aldanna, elns og nið margra vatna. Sólin skln og himinninn er heiður, en þó vitum við, að borginni er sklpt Nokkrir Islendingar staddir f Getsemanegarði. I tvennt með múr og gaddavír, og hefur svo verið frá þvl, er Ásmundur biskup var þarna á ferð I sinni Jórsalaför érið 1939. Þorvarður Magnússon. Gamlir menn á gangi I Jerúsalem. 7

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.