Æskan

Volume

Æskan - 01.12.1973, Page 15

Æskan - 01.12.1973, Page 15
nokkur lltil barrtré uxu, og settust I svellkaldan sjóinn. Þau þrýstu sér hvort aS öðru, þvl að nistandi kuldi var. Jóla- pakkana lögðu þau í snjóinn og biðu og vonuðu, að veðrið lœgðl. Bylurinn lamdi og skók grenltrén. Börnin horfðu á skaflana framundan, þar sem snjórinn þyrlaðist upp I háa stróka, sem svifu á milli hæðanna. Loks fóru þau að sjá myndir af álfum og jólasvelnum birtast i fjúkinu. „Sjáðul" sagðl drengurlnn við systur sina og benti fram fyrir slg, „sérðu ekkl álfana, sem dansa þarna? Sérðu ekki álfameyjuna með Ijósið i hendinni og þessa, sem er að blása kúlunum, ó, og sko, þarna er sjálfur álfakonungurinn, hann stlgur dans við drottningu sína. — Nei, sko jólasvein- ana, sem eru að lelka sér þarna i snjónum ... heyrirðu, þeir eru að hlæja og flissa!" Jú, jú, hún systir hans sá þetta allt og heyrðl. Augu barn- anna Ijómuðu af öllum þessum furðusýnum. „Og þarna, sérðu, hafa álfar og álfameyjar sleglð hring um stórt jólatré," hélt drengurinn áfram. „Sjáðu þarna hana jólasveinamömmu, hún er að elda — sjáðu eldinn, sem logar undir stóra, svarta pottinum hennar, — finnurðu ekkl llmlnn?" Jú jú, hún fann ilminn hún systir hans. „Nel sko — sjáðu lltla jólasveinlnn, sem situr við hliðlna á henni og slelklr út um," og drengurinn fór að skellihlæja — en hann hætti þvi strax, þegar hann fann, hve svangur hann var orðinn, og systlr hans tók um magann — hún var orðin svo svöng. Ennþá hélt áfram að kyngja niður snjó, og sifellt varð börnunum kaldara og kaldara, og jólaljósin, sem áður höfðu Ijómað svo skært f hjörtum þeirra, döpruðust nú óðum. Þá heyrðu þau ámátlegt ýlfur, líkast hundsýlfrl, og skimuðu nú I kringum slg. Sáu þau þá lítinn hvolp, sem skrelddist skjálfandi til þeirra. Þau tóku hann i kjöltu sér og hlúðu að honum, og litla stúlkan, sem hríðskalf sjálf, lagði hann að barmi sínum og breiddi kápuna sína yfir hann. Svarti feldur- inn var gaddfreðinn, og hún horfði I þakklát svört augu hvolpslns. Drengurinn reyndl að skima í allar áttir, en hvergi sá hann rofa til i hriðinni. Og nú horfðu systkinln döprum augum á jólapakkana, sem afi og amma áttu að fá, og voru nú fenntir I kaf. Allt I einu hrópaði stúlkan: „Sjáðul Þarna er stjarna, björt og skær, það er stjarnan, sem alltaf hefur visað okkur leiðina til afa og ömmu." „Það er að birta til," hrópaði drengurinn. „Sérðu, það er að glaðna til.“ 13

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.