Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1973, Síða 27

Æskan - 01.12.1973, Síða 27
Jólaskipið Jólaskipið er gert úr furufjöl, sem er 30 cm á lengd og 9 cm á breidd. Þykktin á fjölinni mætti vera 2 cm. Með laufsög er gerður stafn á skipið, og öll er fjölin hefluð og slipuð vel með sandpappír. Tvö göt eru gerð, þar sem siglutrén standa, en þau eru nú raunar kerti. Fjórar holur þarf að bora niður í þilfarið til þess að stinga I 9i"enigreinunum. Tvær þeirra eru aftur í skut, ein í miðju skipi og ein frammi í stafni. Að síðustu eru svo nokkur epli lögð á þilfarið. Skipig mætti mála með skærum litum, t. d. þilfarið gult en kinn- unga rauða. Kertahaldara úr málmi þarf að setja í holurnar, þar sem kertin standa. steinunum heyrðist glaumur af hófaskellum þeirra, er þeir tróðu eftir götunum. — Ó, guð hvað hann var svangur, — bara að hann fengi ofurlítinn bita. Hann tók. að sviða af kulda í litlu, grönnu fingurna sína. — Lögregluþjónn gekk fram hjá, en hann leit undan til þess að þurfa ekki að horfa á drenginn. Og nú blasti við ný gata. En hvað hún var breið. Hér hlaut oft að vera ekið yfir fólk, — eins og fólkið líka hleypur og eins og farartækin aka! Eða Ijósin — allt í Ijóshafi! Og hvað var nú þetta? Geysistór gluggi. Og Innan við rúðuna tré, sem nær alveg upp I loftið þar inni. Það er jólatré með mörgum smáum Ijósum, silfur- og gullpappír og epl- um og litlum hestum og brúðum; og umhverfis það hleypur barn í stofunni og það er í svo fallegum fötum, og það lelkur sér og hlær, og borðar og drekkur dýrindis krásir. Og nú byrjar lítil telpa að dansa við drenginn; en hvað hún var falleg, litla stúlkan! Og tónllst berst út um gluggann. Lltli drengurinn úti á götunni horflr inn um gluggann, og hann hrífst svo með gleði barnanna, að hann tekur að hlæja, enda þótt hann verki f tærnar af kulda og fingur hans séu rauðir og stirðlr. En hann finnur skyndilega, hve örðugt hann á með að beygja þá. Hann verkjar þá svo sárt, að hann fer að gráta og hleypur áfram. En hann ber að öðrum glugga og innan við hann er Ifka jólatré, og þar er borð, fullt af kökum og rauðum og gulum möndlum, og þarna sitja nokkrar stúlkur og gefa kökur þeim, er inn koma. Og stöðugt streymir fólk inn frá göt- unni. Litli drengurinn þokar sér að dyrunum, og skyndilega opnar hann og gengur inn. Ó, vinur kær, hrópuðu stúlk- urnar til hans og böðuðu út öllum öngum, og ein lítil stúlka kom hlaupandi til hans, stakk skildingi í lófa hans og opn- aði sjálf fyrir hann hurðina. Hann varð svo hræddur! Skild- ingurlnn skondraði úr hendi hans niður eftir tröppunum, Þvl að hann gat ekki haldið honum í krókloppnum fingr- unum. Hann hljóp í brott svo hratt sem hann komst, án þess að hugsa um það, hvert hann hljóp. Hann vildl gráta, en vissl, að hann gæti ekki bara hlaupið og bláslð I kaun tll þess að verma fingur sina. Hann var svo vansæll og óhamingjusamur, hann fann sig svo undarlegan og ein- mana í öllu þessu mannhafi — svo einmana og yflrgeflnn. En skyndilega .. . Ó, guð, hvað var nú þetta? Hópur fólks stendur úti fyrir einum glugganum og á milli þess getur hann séð inn um rúðuna, hvar þrjár stórar grænklæddar brúður voru, og þær lita alveg eins út og lifandi verur. Ein þeirra... það er raunar gamall maður ... situr og lelkur á fiðlu, en hinar standa við hlið spilarans og kinka kolli og bæra varirnar, eins og þær séu að tala saman, en ekkert heyrist þó frá þeim út fyrir rúðuna. Fyrst áleit drengurinn, að þetta væri lifandi fólk, en þegar hann sá, að svo var ekkl, tók hann að hlæja. Aldrei hafði hann séð annað eins; honum var grátur í hug, en þó hló hann, þvf.að þetta var svo kátleg sjón! En í sömu andrá var kippt f hann aftan frá; það var stór stráksláni, og þessi óþokki sló hann f hnakk- ann, reif af honum húfuna og sparkaði f hann. Litli dreng- urinn féll við, og fólkið hrópaði upp yfir sig. Hann brölti aftur á fætur og hljóp á brott; hann var örvita af angist og hljóp éins og fætur toguðu, hugsunarlaust og utan við slg, unz hann fann sér afdrep í kjallaranum. Þar fleygði hann sér niður bak við þvottabala. Hér fann hann sig öruggan. Þarna var myrkur, svo að ,,þeir“ mundi ekki geta fundið hann. Þarna sat hann og náði vart andanum af ótta. En allt I einu, já, alveg skyndilega, leið honum orðið vel; hann fann ekki lengur neina verki í höndunum eða fótunum, og hon- um varð svo notalega hlýtt, alveg eins og hann sæti uppi á ofninum heima. Hann hafði næstum sofnað. En hvað það hlaut að vera gott að sofa hér. Ég ætla að hvfla mig hér um stund, og svo ætla ég að fara aftur og Ifta á brúðurnar, hugsaði drengurinn og brosti með sjálfum sér — alveg eins og þær væru lifandi!... Þá heyrðist honum sem móðir 25
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.