Æskan

Volume

Æskan - 01.12.1973, Page 28

Æskan - 01.12.1973, Page 28
hans væri a5 syngja. — „Mamma, ég er sofandl, þa3 er gott að sofa hér!" „Komdu til jólatrésins míns, barnið mitt,“ hvislaði mild rödd rétt hjá honum. Fyrst hugsaði hann að þetta væri móðir sln, en það var ekki hún. Hver gat það þá verið, sem var að kalla á hann? Hann sá engan, en einhver beygði sig yfir hann og faðm- aði hann að sér I myrkrinu. Hann breiddi út hendurnar — nei, þvílík tindrandi Ijósadýrð! Og, nei, og þetta líka jólatré! En gat þetta annars verið tré? hann hafði aldrei séð annað eins tré. Hvar var hann staddur? Tindrandi Ijós allt um- hverfis hann, og margar, margar brúður. Nei, annars, þetta voru ekki brúður, það voru smádrengir og telpur, svo björt yfirlitum, og þau dönsuðu kringum hann og flugu til hans og kysstu hann, og hann starði á þau — og þarna sá hann móður sina, hún horfði svo hamingjusöm á hann. „Mamma, mamma, ó hve gott er að vera hér!“ hrópar hann, og hann kyssir hin börnin og vill strax fara að segja þeim frá brúðunum I verzlunargluggunum, og hann spyr þau: „Hverjir eruð þið, drengir, og hverjar eruð þið, litlu stúlkur?" Hann hlær og leikur við hvern sinn flngur. „Þetta er jólatré Jesús," svara þau. „Þetta kvöld hefur Kristur alltaf jólatré handa þeim börnum, sem ekki eiga jólatré sjálf...“ Og þá vissi hann, að öll börnin I kringum hann voru fátæk elns og hann; sum höfðu verið rekin frá dyrum ókunnugs fólks og höfðu frosið I hel f einhverjum húsagarðlnum. Önnur höfðu dáið í rennustelnunum; þegar þau voru send út af fátækrabarnasjúkrahúsunum og enn önnur höfðu orðið hungurmorða við köld brjóst mæðra sinna [ járnbrautarlestum á þriðja farrými, þar sem kuldinn hafði níst hjarta þeirra. En nú voru þau öll englar, gestir Jesús, og hann var meðal þeirra. Hann réttl þeim hönd sína og blessaði þau og hinar syndugu mæður þeirra. Og þarna skammt frá þeim standa mæður þelrra og gráta. Þær þekkja aftur litla drenglnn sinn eða litlu dótturina, og börnin hlaupa upp í fang þeirra og kyssa þær og þurrka tár mæðra sinna með litlu höndunum sinum, og biðja þær að hætta að gráta, þvi að þau séu svo hamingjusöm núna... Og niðri í kjallaranum fann húsvörðurinn litla drenginn látinn á jóladagsmorguninn, þar sem hann hafði kropið bak við þvottabalann. Móðirin fannst líka... Hún hafðl látizt á undan drengnum. En þau höfðu hitzt aftur hjá guði á himnum. Hvers vegna hef ég skáldað upp aðra eins sögu og þessa í dagbók mina, sem einungis átti að geyma raunverulega hlutl? En þið skiljið það ef til vill, að ég get ekki komlzt hjá því að hugsa mér, að allt þetta hafi raunverulega borið við — ég á við það sem gerðist í kjallaranum við þvotta- balann. Hvað jólatré Krists viðvíkur, get ég ekki fullyrt, að hve mlkiu leyti það er raunveruleiki. En eitthvað verður skáld þó að hafa leyfi til að skrifa um. Veðrið var svo indælt. Ég var að leika mér við Lalla og Imbu úti á hóln- um. Þau voru nýkomin að Selhólum, og mér þótti svo gaman að leika mér við þau. Við vorum búin að raða skeljum og völum um allan hólinn. Það var féð okkar. Við tókum ekkert eftir þvi, að regnskýin færðust smátt og smátt yfir loftið. Þegar leikurinn stóð sem hæst, kom dynjandi rigning. Ég góndi upp í loftið og hugsaði sem svo: „Æ, hvaða ósköp er að sjá þetta! Svona mikið vatn getur ekki streymt niður um litla sprungu." Ég var ekki lengur i neinum vafa. „Ó, Guð hjálpi mér, og mamma líka! — Imba! Imba! Sérðu ekki gluggann, sem hefur brotn- að þarna uppi?“ hrópaði ég og benti upp ( loftið. „Jú, ég held ég sjái það!“ sagði Imba og fór að háskæla. Himna- glugginn brotnar Við vorum að smala fénu okkar, öll rlðandi á prikum, þegar ósköpin dundu yfir. Ég henti frá mér prikinu mínu, skildi eftir öll gullin min og hljóp skæl- andi heim túnið, eins og ég ætti lífið að leysa. Lalli og Imba komu æpandi á eftir mér. Þau vissu, að ég var speking- ur að viti, það þurfti svo sem ekki að rengja það, sem ég sagði, enda sá Imba sjálf, með sínum eigin augum, gluggann brotna! Við æddum inn göngin og skelltum á eftir okkur öllum hurðum. Lalli og Imba gripu dauðahaldi i pilsfald mömmu sinn- ar. Þau ætluðu alveg að æra hana með óhljóðum, en ég stóð úti í horni skjálf- andi af hræðslu. „Eruð þið gengin af vitinu, börn?" spurði húsmóðirin og hleypti brúnum. „Það brotnaði einn glugginn þarna uppi á himninum rétt áðan,“ svaraði Imba kjökrandi, „og það streymdi svo mikið vatn yfir okkur." „Snáfið þið burt frá augunum á mér, ellegar ég skal flengja ykkur," sagði mamma hennar, „þetta er bara rign- ing!“ Sigurbjörn Sveinsson.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.