Æskan

Årgang

Æskan - 01.12.1973, Side 42

Æskan - 01.12.1973, Side 42
— — VERDLAUNAFERÐ ÆSKUNNAR, VOLVO OG FLUGFÉLAGS ÍSLANDS 1973: Á Jónsmessu í Gautaborg /S2 ÞAR RÚLLA BÍLAR AF FÆRIBÖNDUM Þeir ferðafélagarnir, Þormar og Óskar, vöknuðu fyrir allar aldir næsta morgun. Grímur hafði sagzt ætla að vekja þá kl. 7:30. Kl. rúmlega sex voru þeir hinir sprækustu, vel vaknaðir og ræddu saman um alla lieima og geima. Hvernig var líka hægt að sofa, þegar sólin skein svona glatt? Úti fyrir færð- ist líf í umferðina upp úr kl. sex, og herbergið þeirra sneri út að Drottn- ingartorginu og aðaljárnbratitarstöð- inni. Ekki var samt undan því að kvarta að hávaði bærist utan af göt- unni. Fyrir því var séð með tvöföld- um gluggum og góðum umbúnaði þessa nýja og glæsilega gistihúss, þess stærsta í Gautaborg. Klukkan rétt fyr- ir 8:00 voru þeir klæddir, þvegnir og stroknir og héldu niður í matsalinn í kjallara hótelsins, Evrópukjallarann, eins og hann er nefndur. Þarna var til reiðu staðgóður morgunverður, flesk, egg, mjólk, brauð, ostur og ýmislegt, sem of langt yrði upp að telja. Fólk gekk að stóru borði hlöðnu alls kyns kræsingum og valdi það, sem því leizt bezt á. Þeir heyrðu allt í einu talaða íslenzku. Þarna var kominn hópur ís- lendinga, sem hafði verið á ferðalagi í Noregi og Svíþjóð, þarna voru fé- lagar úr Kiwanisklúbbi frá Reykjavík ásamt konum sínum. Hópurinn var nú á leið til Kaupmannahafnar, þar sem dvalið skyldi í nokkra daga, en síðan haldið til íslands. Að lokinni máltíð héldu þeir upp i Óskar, Grímur, Þormar og Sveinn. 40

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.